Íslendingalið Bayern endurheimti toppsætið með risasigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. apríl 2023 14:16 Glódís Perla Viggósdóttir er lykilhlekkur í vörn Bayern München. Getty/Xavi Bonilla Íslendingalið Bayern München skaust aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann sannkallaðan risasigur gegn Freiburg í dag. Lokatölur 8-2, en heimakonur voru búnar að gera út um leikinn í fyrri hálfleik.
Bayern byrjaði leikinn af miklum krafti og Maximiliane Rall, Saki Kumagai og Carolin Simon sáu til þess að staðan var orðin 3-0 eftir aðeins tuttugu mínútna leik. Rall bætti svo öðru marki sínu við á 31. mínútu á milli tveggja marka frá Sydney Lohmann og staðan var því 6-0 í hálfleik. Gestirnir klóruðu í bakkann snemma í síðari hálfleik, en Lea Schuller og Klara Buhl bættu sínu markinu hvor við fyrir Bayern áður en Marie Muller skoraði sárabótamark fyrir Freiburg á seinustu mínútu venjulegs leiktíma. Glódís Perla Viggósdóttir lék allann leikinn í hjarta varnarinnar hjá Bayern og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af varamannabekknum þegar um hálftími var til leiksloka. Með sigrinum skaust Bayern aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar. Liðið er með 49 stig eftir 18 leiki, einu stigi meira en Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg sem sitja í öðru sæti.
Þýski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Sjá meira