Sögusagnir um ástarsamband Nighy og Wintour hafa flogið um margra ára skeið en þau ávallt tekið fyrir það og sagst vera góðir vinir. Það fór því allt á flug þegar þau gengu saman rauða dregilinn á Met á mánudag. Almennt hefur það þótt, að ganga saman rauða dregilinn, staðfesting á sambandi meðal stórstjarna vestanhafs.

Wintour og Nighy virtust sannarlega ástfangin á dreglinum í New York: Brostu skært og hvísluðu hvort að öðru. Talsmaður Nighy hefur nú sagt við slúðurmiðilinn Page Six að þau hafi einfaldlega verið góðir vinir í tvo áratugi. Þau séu ekki saman.

Talsmenn Wintour vildu ekki tjá sig um slúðursögurnar en heimildarmaður, sem á í nánu sambandi við hana, sagði í samtali við Page Six að myndirnar töluðu sínu máli.
