Sveindís Jane þýskur bikarmeistari Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2023 17:53 Sveindís Jane fagnar hér ásamt liðsfélögum sínum. Vísir/Getty Sveindís Jane Jónsdóttir er þýskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir að lið hennar Wolfsburg var 4-1 sigur á Freiburg í úrslitaleik í dag.
Sveindís Jane var í byrjunarliði Wolfsburg í dag sem er í efsta sæti þýsku deildarinnar en Freiburg í sjötta sæti. Það blés ekki byrlega fyrir Freiburg í upphafi leiks í dag því strax á 4. mínútu skoraði Lisa Karl sjálfsmark og Wolfsburg komið í forystuna. Freiburg tókst þó að jafna metin fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Janina Minge skoraði og staðan 1-1 í hálfleik. Sveindís Jane var tekin af velli í hálfleik og í síðari hálfleik tryggðu liðsfélagar hennar Wolfsburg nokkuð öruggan sigur. Rebecka Blomqvist kom Wolfsburg í 2-1 á 58. mínútu og Alexandra Popp bætti þriðja markinu við sex mínútum fyrir leikslok. Á 89. mínútu gulltryggði Dominique Janssen Wolfsburg síðan sigurinn þegar hún skoraði úr vítaspyrnu og 4-1 sigur staðreynd. Bikaritlinum fagnað.Vísir/Getty Wolfsburg er því þýskur bikarmeistari í knattspyrnu en leikurinn í dag var vel sóttur en rúmlega 40.000 áhorfendur voru á pöllunum.
Þýski boltinn Mest lesið Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Evrópuævintýri Breiðabliks og Víkings ásamt Bestu kvenna Sport Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Katla kynnt til leiks í Flórens Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Sjá meira