Vísir greindi frá því á dögunum að forráðamenn GOG hefðu sett sig í samband við Snorra Stein en Nicolej Krickau, núverandi þjálfari GOG, mun yfirgefa herbúðir félagsins eftir yfirstandandi tímabil og taka við þýska liðinu Flensburg.
Snorri Steinn hefur verið í viðræðum við HSÍ undanfarnar vikur um að taka við þjálfun íslenska landsliðsins en erfiðlega hefur gengið fyrir Handknattleikssambandið að sigla því máli í höfn. Landsliðið hefur verið án þjálfara síðan Guðmundi Guðmundssyni var sagt upp í febrúar.
Í viðtali við TV3 Sport fyrir leik GOG og Barcelona í Meistaradeildinni, sem fram fer á Spáni nú í kvöld. staðfesti Kasper Jörgensen, íþróttastjóri GOG, að hann hefði rætt við Snorra Stein líkt og Vísir hafði áður greint frá.
Hann sagði að hann væri einn af þeim sem kæmu til greina í starfið en nokkrir aðrir væru á lista danska stórliðsins. Áður hafði komið fram að GOG vildi hafa hraðar hendur í að finna næsta þjálfara en Snorri Steinn er fyrrum leikmaður liðsins.
„Það er ekki langur tími sem við getum gefið okkur í þjálfaraleitina vegna þess að næsta tímabil hefst um miðjan júlí,“ segir Kasper í viðtali við TV2. „Okkur liggur því á að finna þjálfara sem getur gert GOG að dönskum meistara.“