Skógræktarfélag Íslands og Nettó tryggja aðgengi að skógum landsins Nettó 26. maí 2023 09:36 Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands og Helga Dís Jakobsdóttir, markaðsstjóri Nettó undirrita samninginn. Nettó og Skógræktarfélag Íslands hafa nú skrifað undir samstarfssamning um verkefnið Opinn skógur. Markmiðið með samstarfinu er að bæta aðstöðu og auka aðgengi á opnum skógræktarsvæðum í alfaraleið og miðla fræðslu um lífríki, náttúru og sögu svo almenningur geti nýtt sér skógana til áningar, útivistar og heilsubótar. Með samningnum er rekstur verkefnisins tryggður út næsta ár auk þess sem unnið verður að kynningu á því.
Opnir skógar eru nú sautján talsins, öllum opnum og staðsettir víðs vegar um landið. Skógarnir eru allir með góða útivistaraðstöðu og verður unnið áfram að þróun og bættu aðgengi þannig að sem flestir landsmenn geti notið þeirra miklu gæða sem felast í skógunum. „Þessi samningur skiptir okkur miklu máli og tryggir rekstur Opinna skóga fram á næsta ár,“ segir Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands. „Nú munum við kynna verkefnið enn frekar og hvetja landsmenn til að sækja í skógana enda er þar að finna frábæra aðstöðu til samveru og útivistar enda er þekkt að skógarvist bætir heilsu og hamingju fólks.“ „Þetta verkefni fellur vel að umhverfisstefnu okkar hjá Nettó en við erum alltaf með það markmið að lágmarka umhverfisáhrifin af starfseminni eins og hægt er. Skógræktarfélagið er mikilvæg stoð í náttúru- og umhverfisvernd hér á landi og erum við því gríðarlega ánægð með þetta samstarf,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir, markaðsstjóri Nettó. „Við hvetjum alla sem eru að ferðast um landið að stoppa við í Nettó skógunum út um allt land, taka sér göngu eða nestispásu og njóta náttúrufegurðarinnar á ferðinni um landið.“ Nánar má lesa um Opna skóga hér á vefnum.
Skógrækt og landgræðsla Heilsa Mest lesið Tollar á ál og stál hækka Viðskipti erlent Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Atvinnulíf Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Viðskipti innlent Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta Viðskipti innlent Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Viðskipti innlent 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira