Veiðin gekk samkvæmt okkar heimildum vel þennan fyrsta dag en flestar stangirnar voru að fá 5-15 fiska sem er virkilega fín veiði. Árni Friðleifsson fyrrum formaður SVFR og Jóhann Jón Ísleifsson, betur þekktur sem Jonni gæd, voru komnir með níu fiska á morgunvaktinni. Flest svæðin voru að gefa ágætlega en rólegast var á Hamri og Brettingsstöðum. Við fáum eflaust fleiri fréttir að norðan en á miðvikudaginn hefst svo veiði í Laxárdalnum. Við bendum á að það eru lausar stangir þar 8-10. júní og svo í Caddishollið 10.-13. júní. Næstu lausu dagar í Mývatnssveit eru uppúr miðjun júlí.
