Frábært opnunarholl í Norðurá Karl Lúðvíksson skrifar 7. júní 2023 08:53 Brynjar sölustjóri Norðurár með flottan lax úr opnun Norðurá hefur ekki opnað jafnvel síðan 2016 en meira að segja í samanburði við það ár er þetta ennþá skemmtilegri opnun hvað margt varðar.
Áiner í frábæru júnívatni og aðstæður gætu varla verið betri. Hollið sem opnaði ána veiddi í tvo og hálfan dag og landaði 35 löxum sem er miklu meira en nokkur þorði að vona. Brynjar Þór Hreggviðsson sölustjóri Norðurár er að vonum kátur með þessa opnun. "Þetta var bara í alla staði frábær opnun og það sem vakti athygli okkar er ekki bara að það var einungis einn smálax í veiðinni en tveggja ára laxinn var meira og minna allur yfir 80 sm og rosalega vel haldinn" sagði Brynjar í samtali við veiðivísi. Laxinn var að veiðast mest á Eyrinni, Brotinu, Bryggju en einnig var sett í laxa í Laugakvörn, Stokkhylsbroti, Hvararhylsbroti, Hræsvelg en þar slapp einn stór, Hornbreiðu, Stekk og Munaðarnesi. Stærsti laxinn í hollinu var 94 sm en sá sem slapp í Hræsvelg var nokkuð víst talinn stærri. Það verður spennandi að fylgjast með næstu opnunum en laxar eru farnir að sjást víða núna.
Stangveiði Borgarbyggð Mest lesið Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Lokatalan í Straumunum Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði 19 laxa dagur í Hrútafjarðará Veiði 57 laxar gengnir í gegnum teljarann í Elliðaánum Veiði Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá Veiði Eystri Rangá að nálgast 2.000 laxa Veiði Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Veiði