Tate ákærður fyrir nauðgun og mansal Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. júní 2023 11:03 Tate hefur setið í stofufangelsi síðan í lok mars. EPA Umdeildi áhrifavaldurinn Andrew Tate hefur verið ákærður fyrir nauðgun, mansal og skipulagða glæpastarfsemi í Rúmeníu.
Í frétt The Guardian segir að Tate, ásamt bróður sínum, Tristan Tate, hafi verið ákærður fyrir grun um mansal á sjö konum. Þeir neituðu báðir sök. Þá er áhrifavaldurinn að auki ákærður fyrir að hafa nauðgað einni af sjö konunum, á meðan bróðir hans er ákærður fyrir að hafa hvatt til ofbeldis. Samkvæmt rúmenskum lögum verður málið sent áleiðis til dómara sem hefur sextíu daga til þess að rannsaka gögn tengd málinu áður en málsmeðferð fer fram. Bræðurnir voru handteknir á heimili sínu í Búkarest, ásamt vitorðsmönnunum Georgianu Naghel og Luana Radu, í lok síðasta árs. Þeir sátu í gæsluvarðhaldi þar til í lok mars, þegar þeir voru úrskurðaðir í stofufangelsi. Saksóknarar segja bræðurna hafa gabbað konur til að ferðast til Rúmeníu, þar sem þeir búa, bannað þeim að fara úr húsi, haldið þeim sem þrælum og þvingað þær til að framleiða klám. Þá segja þeir konurnar hafa verið þvingaðar til að húðflúra á sig nafn eða mynd af andliti þess sem átti einn rétt á því að brjóta á þeim.
Mál Andrew Tate Rúmenía Mest lesið Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Innlent Fleiri fréttir Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Sjá meira