Bréf dóttur upphafið að ógleymanlegu bónorði Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 28. júlí 2023 07:01 Aðsend Dóra Dúna Sighvatsdóttir ljósmyndari og Guðlaug Björnsdóttir förðunarfræðingur eru orðnar hjón. Þær trúlofuðu sig á Ítalíu í fyrra eftir rómantískt bónorð sem byrjaði á fallegu bréfi dóttur Guðlaugar sem fékk gesti til að fella tár. Nánustu vinir og fjölskylda fögnuðu með hjónunum í Fríkirkjunni í Reykjavík um helgina. „
Það kom engin önnur kirkja til greina því þetta er eina kirkjan sem opnar faðm sinn gagnvart samkynhneigð,“ segir Guðlaug. Fríkirkjan hafi verið sú fyrsta til að leyfa brúðkaup samkynhneigða innan sinna veggja eftir að þau voru leyfð hér á landi. Þá opni kirkjan dyr sínar fyrir allri trú. Guðlaug og Dóra giftu sig í Fríkirkjunni í Reykjavík.Aðsend „Fyrir utan það augljósa, þetta er fallegasta kirkja landsins,“ segir Guðlaug. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson gaf þær saman en hann skírði yngstu dóttur þeirra þremur vikum fyrr. Hún fékk nafnið Ragnhildur Sesselja en hún kom í heiminn í júní. Fyrir á Guðlaug tvo syni og eina dóttur. Eftir fyrsta kossinn vissu þær hvað þær vildu.Aðsend Að athöfn lokinni var haldið á veitingastaðinn Hjá Jóni við Austurvöll þar sem gengið var með dótturina í vagninum með fram Tjörninni í blíðskaparveðri. „Við fengum ljúffengan mat og skáluðum í kampavíni sem elsku besta tengdamamma og amma var búin að kaupa,“ segir Guðlaug. „Dagurinn var yndislegur í alla staði þar sem við vorum umkringdar okkar besta fólki. Fimm vikna dóttir okkar var meðal gesta og var aðalstjarna kvöldsins, alsæl með alla athyglina.“ Á leið út að borða eftir athöfnina.Aðsend Ítalskt brúðkaup í vændum Aðspurð um brúðarfötin segir Guðlaug þær hafi ákveðið að velja látlausan klæðnað þar sem stefnan sé sett á stóra veislu síðar. „Ég var í kjól sem var keyptur í Gallerí 17 og Dóra klæddist svartri skyrtu frá okkar uppáhalds merki MAISON MARGIELA,“ segir Guðlaug sem fékk Hlín Reykdal, vinkonu sína og skartgripahönnuð, til að útbúa blómvönd úr blómum sem voru tínd við Esjurætur kvöldið fyrir athöfnina. Nýgiftar í blíðviðrinu.Aðsend Brúðhjónin eru stödd í minniháttar brúðkaupsferð í Riga í Lettlandi, ásamt yngstu dóttur þeirra, þar sem foreldrar Dóru eru búsett. „Við ákváðum að skella okkur í dekur til tengdó þar sem pössun er innifalin. Við fáum þá tækifæri til skreppa á nokkur deit,“ segir Guðlaug. Samstíga frá byrjun Guðlaug og Dóra byrjuðu saman fyrir einu og hálfu ári, í byrjun árs 2022. Á þeim tíma hafa þær flutt inn saman, eignast barn og gengið í hjónaband. „Eftir fyrsta kossinn vissum við báðar að við þráðum ekkert heitar en að vera saman, sem er líklega ástæðan fyrir því hvað hlutirnir gerast hratt,“ segir Guðlaug. „Þetta er ást sem átti alltaf að verða.“ Aðsend Eftir átta mánaða samband bað Dóra um hönd Guðlaugar þar sem þær voru staddar í fríi á Ítalíu. „Þegar ég kynntist Dóru vissi ég að hana dreymdi um að eignast börn. Hún veit hvað hún vill þannig að hugmyndir hennar og atferli í lífinu kemur því ekkert á óvart,“ segir Guðlaug kímin. Sagan á bak við bónorðið er falleg. Bónorðið grætti heilan veitingastað „Við tókum skyndiákvörðun í ágúst í fyrra að fara í frí til Ischia á Ítalíu. Fyrsta daginn römbuðum við inn á dásamlegan veitingastað við ströndina með betri mat sem ég hef fengið og æðislegri þjónustu. Þá var Gay-fánanum flaggað sem dró okkur enn meira að staðnum,“ segir Guðlaug. Dóra Dúna og Guðlaug hamingjusamar og trúlofaðar.Aðsend „Mánuði síðar vorum við aftur komnar á sama stað, þá með fjölskyldu okkar í tilefni af afmæli vinkonu okkar Önnu Þóru. Um morguninn hafði Dóra orð á því í hvaða fötum ég ætlaði að vera áður en við myndum sigla yfir í eyjuna. Það er afar ólíkt henni,“ segir Guðlaug sem kveðst hafa verið grunlaus um ráðabrugg kærustunnar. „Við vorum sestar á veitingastaðinn okkar ásamt tengdamömmu minni og Bjarna bróður Dóru, til að fá okkur hádegismat. Allt í einu fannst mér stemmningin við borðið afar skrítin og sá að Bjarni, sem sat á móti mér, var með tárin í augunum og aðrir gestir farnir að fella tár,“ segir Guðlaug. „Ég skildi nákvæmlega ekkert hvað var á seiði.“ Dóra rétti Guðlaugu bréf sem Sóllilja dóttir þeirra hafði skrifað Dóru. Í bréfinu tjáði Sóllilja sig um hamingju móður sinnar sem hún hafði sjaldan séð skína jafn skært fyrr en hún kynntist Dóru. Kvöldið þegar þær trúlofuðu sig.Aðsend „Ég gat ekki haldið tárunum aftur við lesturinn sem endaði síðan með bónorði frá Dóru. Þetta var svo endalaust fallegt móment sem við gleymum aldrei,“ segir Guðlaug. Hún lýsir því hvernig allur staðurinn hafi staðið upp og skálað fyrir ástfangna parinu.
Ástin og lífið Tímamót Mest lesið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Lífið samstarf Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Lífið Fleiri fréttir Vetrarhátíð með gagnvirkri ljósasýningu hefst í dag Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Einhvern tímann var allt fyrst Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Frumsýning á Vísi: Óvæntir gestir hjá Væb-bræðrum Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga „Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa“ Kærasta Liam Payne tjáir síg í fyrsta sinn 340 fermetra listaverkahöll í Kópavogi Þriðja barn Gisele komið í heiminn Líkamsræktarfrömuður selur í Kópavogi Irv Gotti er látinn Halla og Björn létu sig ekki vanta á þorrablóti Álftaness Sleikurinn við Colin Farrell ógleymanlegur Hugsi yfir bílastæðamálum sem eru til skoðunar Peaky Blinders stjarna lét sig ekki vanta á The Damned Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu Gulli Helga tók yfir og Sindri beið á kantinum Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Uppistandarar, ráðherrar og kempur á þorrablóti Vals „Dorrit var eiginlega Séð og heyrt stúlkan“ Drengurinn skal heita Ezra Sundlaugastarfsmenn skemmtu sér á þurru landi Syngur Cha Cha Cha á Söngvakeppninni Séð og heyrt gæti átt framhaldslíf Hvers vegna karpa menn í þartilgerðu húsi? Seldist upp á einni mínútu Sjá meira