Manchester United hefur mikinn áhuga á að fá Højlund og Erik ten Hag, knattspyrnustjóri liðsins, vonast til að geta gengið frá kaupunum á honum áður en tímabilið hefst.
United hefur nú fengið samkeppni um Højlund frá PSG. Frönsku meistararnir hafa gert Atalanta tilboð í Danann sem hljóðar upp á 42,8 milljónir punda. Boltinn er því núna hjá Atalanta.
Højlund kom til Atalanta frá Sturm Graz í fyrra. Á síðasta tímabili skoraði þessi tvítugi framherji tíu mörk fyrir Atalanta.
Højlund hefur skorað sex mörk í sex leikjum fyrir danska landsliðið.