Arsenal er sagt mjög áhugasamt um að tryggja sér þjónustu Raya, þó ekki til að skipta aðalmarkverði liðsins Aaron Ramsdale út, heldur veita honum samkeppni um stöðuna. Þá hefur Bayern Munchen einnig látið í veðri vaka að liðið hafi áhuga á Raya en aðalmarkvörður liðsins, Yann Sommer, virðist vera að ganga til liðs við Inter á Ítalíu.
Raya vakti athygli fleiri liða eftir góða frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni í vetur þar sem hann hélt tólf sinnum hreinu og fékk aðeins á sig 41 mark.

Bæði Manchester United og Tottenham voru með Raya á óskalistanum áður en liðin sömdu við Andre Onana og Guglielmo Vicario. Má í raun segja að hálfgerð markvarðahringekja sé núna í gangi í evrópsku deildunum, sem sér ekki fyrir endann á.
Einn helsti hvatamaðurinn á bakvið áhuga Arsenal á Raya er Inaka Cana, markmannsþjálfari liðsins. Hann var markmannsþjálfari Brentford þegar Raya kom til liðsins en þeir eru báðir fæddir í Barcelona og Cana er sagður hafa fylgst með ferli Raya allt frá því að hann spilaði með ungliðaliði Cornella í Barcelona.
Raya rataði í fréttirnar í febrúar 2020 þegar hann gerði sig sekan um skelfileg mistök í marki Brentford, sem þá lék í ensku B-deildinni, en sem betur fer virðast þessi mistök ekki hafa lagst þungt á sálina hjá Raya.