ÍBV var sektað um 100 þúsund krónur vegna málsins en leikurinn fór fram í lok júlí þar sem Valur vann 7-1 sigur í Vestmannaeyjum. Ákveðinn hópur kallaði þá að aðstoðardómara leiksins að hann væri hálfviti, hann væri aumingi, hann væri íþróttinni til skammar, að hann ætti að hengja sig og skjóta sig.
Magnús Már Jónsson, dómarastjóri KSÍ, harmar hegðun þeirra sem áttu í hlut. Magnús segir þó að slík atvik séu blessunarlega fá sé litið á stóra samhengið.
„Þarna var náttúrulega farið langt, langt, langt yfir strikið. Sem betur fer þessi hegðun ekki algeng, sem betur fer. Við skulum gera okkur grein fyrir því að á Íslandi þurfum við að manna 26 þúsund dómarastörf. Flestir leikir ganga vel og það er bara ekkert talað um þá. Það er mest talað um leikina sem fara úr böndunum.“
Magnús segir að um 600 dómarar starfi við knattspyrnuleiki hér á landi.
„Við værum ekki með svona marga dómara sem ílengjast svona lengi í þessu ef ástandið væri svona. Þetta er sem betur fer undantekning.“
Fyrir skömmu var farið í átak á vegum KSÍ varðandi hvernig er komið fram við dómara. Magnús segir að í því ljósi sé leiðinlegt að þetta hafi komið upp.
Alla frétt Vals Páls Eiríkssonar úr Sportpakka kvöldsins má sjá hér fyrir neðan.