Það fær Max Verstappen fátt stöðvað á yfirstandandi tímabili. Hollendingurinn er bókstaflega fljúgandi með 125 stiga forskot á toppi stigakeppni ökumanna nú þegar að seinni helmingur tímabilsins hefst í Hollandi um helgina.
Ekkert lið hefur getað skákað Red Bull Racing hingað til á tímabilinu en Mercedes virðist geta komist næst því, liðið situr í 2.sæti í stigakeppni bílasmiða.
„Markmiðið er að reyna finna út úr því hvernig ég get átt mínar tíu bestu keppnir á seinni hluta tímabils,“ segir Hamilton, annar ökumanna Mercedes. „Frammistöðulega séð vitum við að við erum ekki með bílinn til þess að rústa þessum keppnum.
Við munum hins vegar reyna að hámarka stigasöfnun okkar á öllum þessum keppnishelgum, halda í 2.sæti í stigakeppni bílasmiða og minnka bilið upp í Sergio Perez.“
Perez, liðsfélagi Verstappen hjá Red Bull Racing er sem stendur í 2.sæti í stigakeppni ökumanna.
Svo virtist Hamilton, sem er að renna út á samningi Mercedes, vilja líta lengra fram á við.
„Ég er að reyna undirbúa mig í þá átt að þegar að bíllinn er klár muni ég geta barist um sigur og haft betur í keppninni við Max Verstappen.“
| Lewis: I'm trying to prepare myself for when the car is ready to be able to challenge and beat Max #DutchGP pic.twitter.com/JJQrO1hiHt
— Hamilton Insights (@LH44_insights) August 24, 2023