Í tilkynningu segir að samkvæmt 3. grein laga nr. 19/1998, um sjóði og stofnanir sem starfi samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, beri þeim sem beri ábyrgð á sjóði eða stofnun að senda Ríkisendurskoðun ársreikning sjóðs eða stofnunar ásamt skýrslu um hvernig fé hefur verið ráðstafað. Árlegur skilafrestur er 30. júní.
Þetta þýðir að alls hafa 78 prósent sjóða og stofnana ekki skilað ársreikningi innan skilafrests. Á sama tíma í fyrra voru skilin um 30 prósent og um 35 prósent árið 2021. Segir Ríkisendurskoðun að því sé ljóst að skila sjóða og stofnana fari hríðversnandi ár frá ári.

Vænta ráðstafana
„Ríkisendurskoðun lítur þetta mjög alvarlegum augum og ekki hvað síst í ljósi þess að í nýjasta áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka, sem gefið var út í mars 2021, er sérstaklega fjallað um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og ófullnægjandi skil þeirra á ársreikningum síðustu ár.“
Segir stofnunin að athygli stjórnvalda hafi á undanförnum árum verið vakin á slælegum skilum. Væntir Ríkisendurskoðun þess að þegar farið verði í heildarendurskoðun á lagaumhverfi sjóða og stofnana sem starfi samkvæmt staðfestri skipulagsskrá verði gerðar ráðstafanir til að bæta ársreikninga.
Hyggst Ríkisendurskoðun fyrir árslok birta útdrátt úr þeim ársreikningum sjálfseignarstofnana og sjóða fyrir rekstrarárið 2022 sem borist hafa.