Birgitta Líf, sem er markaðsstjóri World Class, og kærasti hennar, Enok , greindu frá því 16. ágúst að þau ættu von á barni. Parið byrjaði að rugla saman reytum í ársbyrjun 2022 en þó nokkur aldursmunur er á parinu þar sem Birgitta er nýorðin þrítug og Enok er 21 árs.

Parið hélt í kvöld svokallaða kynjaveisla að bandarískri fyrirmynd þar sem þau greindu frá kyni barnsins ófædda.
Í slíkum veislum er opinberun kynsins aðalmálið og á netinu má sjá hvernig fólk hefur fundið stöðugt frumlegri leiðir til þess að greina frá kyninu. Í kynjatvíhyggjunni táknar bleikur að von sé á stelpu en blár að það sé strákur á leiðinni.
Í hefðbundnustu kynjaveislum skera foreldrarnir köku sem er annað hvort blá eða bleik að innan, aðrir sprengja innibombur með lituðum glitpappír en í tilfelli Birgittu og Enoks var það þyrla sem dreifði bláum reyk úr lofti.

Verknaðurinn vakti mikla athygli nágranna parsins og hafa sumir hneykslast á því að parið hafi eytt svo miklu púðri í tilkynninguna.
Einn netverji deildi mynd af þyrlunni á Twitter og skrifaði við hana „Á meðan flestir rembast við að flokka, nota bílinn minna, borða minna kjöt etc. heldur Birgitta Líf gender reveal með þyrlu. Eðlilega.“
Á meðan flestir rembast við að flokka, nota bílinn minna, borða minna kjöt etc. heldur Birgitta Líf gender reveal með þyrlu. Eðlilega pic.twitter.com/1MjQOHtIid
— Hekla Finns (@Heklaf) September 17, 2023
Í upphaflegu fréttinni stóð að um blátt duft væri að ræða þegar hið rétta er að um bláan reyk var að ræða.