Þáttinn í heild sinni má horfa á hér fyrir neðan.
Í þessum þætti hittir Gunnar fyrir félagana Sævar Sverrisson tónlistarmann og Friðrik Sigþórsson fasteignasala þar sem þeir eru að hefja dag tvö í árlegu veiðiferð þeirra í Hrútafjarðará. Veiðin í Hrútafjarðará hefur verið sveiflukennd í sumar eins og í flestum ám landsins en hún er þekkt fyrir að eiga oft góða endaspretti á haustinn þegar stóru hængarnir fara á stjá. Veðrið lék við hvern sinn fingur í þessari ferð en það er yfirleitt andstæðan við það veður sem veiðimenn vilja fá í haustveiði.
Í þættinum er líka áhugert að sjá hvað er að gerast í ám landsins og þá sérstaklega á norður og vesturlandi en það hefur ekki farið framhjá neinum veiðimanni að bæði hafa eldislaxar verið að ganga í árnar og ofan á það hnúðlaxar en síðarnefndu kvikindin eru farin að sýna sig í Hrútafjarðará.