Grænlenski fréttamiðillinn Sermitsiaq skýrði frá því í lok september að dagar Verners Hammeken sem forstjóra væru taldir. Aðeins væri spurning um hvort honum yrði sagt upp eða hvort komist yrði að „gagnkvæmu samkomulagi“ um starfslok. Sama dag staðfesti stjórn félagsins brotthvarf forstjórans og gaf þessa skýringu:
„Núna þarf nýja stjórnunarhæfileika til að festa daglegan rekstur rækilega í sessi á öllum stigum félagsins og hefur stjórnin því gert samkomulag við Verner Hammeken um að hann hætti sem forstjóri.“
Einum af framkvæmdastjórum félagsins var til bráðabirgða falið að stýra félaginu þar til nýr forstjóri væri fundinn.

Í frétt Sermitsiaq var rakið að miklar breytingar sem Verner Hammeken hefði gert á starfseminni hefðu sætt harðri gagnrýni úr viðskiptalífi Grænlands. Stjórnendur ýmissa fyrirtækja teldu breytingarnar ekki hafa leitt til úrbóta fyrir grænlensk fyrirtæki heldur þvert á móti. Nefnt var að skipafélagið hefði flutt starfsemi sína í Danmörku frá Álaborg til Árósa og tekið upp sameiginlegar siglingar með íslenska skipafélaginu Eimskip á Atlantshafsleiðinni.
Í beinni fréttaútsendingu Stöðvar 2 frá Nuuk í ársbyrjun 2017 var rætt við forstjóra Royal Arctic Line um samstarfið við Eimskip og Íslendinga:
Forsætisráðherra Grænlands, Múte B. Egede, hefur núna upplýst að utanaðkomandi endurskoðunarfyrirtæki, PwC, hafi verið fengið til að gera áreiðanleikakönnun um fjárhag félagsins og ýmsa samninga. Það sé gert til að fyrirbyggja hugsanlegt tap, sem gæti orðið landssjóði Grænlands dýrt.
„Við hljótum að geta velt við hverjum steini í fyrirtækinu þannig að við, ef þörf krefur, getum brugðist við í tæka tíð. Það hefur verið fjöldi viðvörunarljósa sem gefa til kynna vanda og því er nauðsynlegt að bregðast við tímanlega,“ segir Egede í viðtali við Sermitsiaq í fyrradag.

Hann bendir meðal annars á stóra skuldaliði Royal Arctic Line og gefur í skyn að óvissa gæti skapast um greiðslugetu félagsins. Brýnt sé að bregðast við af ábyrgð til að afstýra slíkri hættu.
Auk áreiðanleikakönnunar á að skoða einkaleyfi Royal Arctic Line á skipaflutningum til Grænlands en einnig siglingasamninginn við Eimskip. Segir Egede að mikil vinna sé framundan, sem ekki verði lokið á skömmum tíma.

Hann vill þó ekki ræða um hvort samstarfið við Eimskip hafi verið góð eða slæm hugmynd né hvort betra sé fyrir grænlenska skipafélagið að slíta því samstarfi og standa á eigin fótum. Bætir Sermitsiaq við þeirri athugasemd að gagnrýnisraddir hafi ítrekað bent á að það sé Eimskip sem hafi úrslitaorðið þegar ákveða eigi siglingaáætlanir sem grænlensk fyrirtæki hafi ekki getað nýtt sér sem skyldi.
Í viðtalinu er Múte B. Egede spurður um hvort grunur sé um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað í rekstri Royal Arctic Line:
„Nei, það er ekki upphafið að ferlinu,“ svarar forsætisráðherra Grænlands.
Hér má sjá þegar samsiglingar Eimskips og Royal Arctic Line hófust með komu nýsmíðaðs skips Grænlendinga til Íslands sumarið 2020:
Stöð 2 fjallaði fyrst um siglingasamstarf Íslendinga og Grænlendinga haustið 2016 í þessari frétt: