Manchester City er komið í undanúrslit FA-bikarsins í knattspyrnu eftir þægilegan 2-0 sigur á Newcastle á heimavelli í dag.
Leiksins í dag var boðið með töluverðri eftirvæntingu enda City ríkjandi bikarmeistarar og Newcastle með sterkt lið sem vel getur velgt liði City undir uggum á góðum degi.
Sá dagur var hins vegar ekki í dag. Bernardo Silva kom City yfir á 13. mínútu þegar skot hans fór af Dan Burn og í boga yfir Martin Dubravka í marki Newcastle sem gat lítið gert. Á 31. mínútu komst City síðan í 2-0 þegar Silva skaut að marki en Sven Botman stýrði boltanum í eigið net með höfðinu.
Staðan orðin 2-0 og Newcastle í tómum vandræðum. Gestirnir gerðu sig sjaldan sem aldrei líklega til að minnka muninn eftir þetta. Þeir komust nokkrum sinnum í ágætar stöður en ekki meira en það. City sigldi sigrinum þægilega í höfn og er því komið í undanúrslit FA-bikarsins í enn eitt skiptið.
Á morgun fara fram seinni tveir leikir 8-liða úrslitanna en Coventry tryggði sér sæti í undanúrslitum í dag með ótrúlegum endurkomusigri gegn úrvalsdeildarliði Wolves.
Chelsea tekur á móti Leicester klukkan 12:45 og stórleikur Manchester United og Everton hefst klukkan 15:30. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.