„Það er alltaf jafn gaman að ganga um nýtt landsvæði, kynnast sérkennum þess, náttúru og menningu. Njóta um leið útivistar og hollrar hreyfingar í einstakri náttúrufegurð, léttklæddur í sólinni.
Jákvæð áhrif gönguferða í náttúrunni eru marg staðfest og það eru engar ýkjur að segja að allir komi endurnærðir á líkama og sál úr slíkri ferð."
Þetta segir Guðrún Sigurðardóttir, fararstjóri hjá Bændaferðum en hún kom fyrst til Ítalíu árið 1980 og hefur verið þar að mestu leyti síðan. Guðrún bjó í næstum þrjá áratugi við Como vatn og býr nú til skiptis á Ítalíu og á Íslandi.
Guðrún hefur undanfarin ár skipulagt og verið fararstjóri í afar vinsælum gönguferðum til Portofino & Cinque Terre og til Comovatns.

„Í gönguferðunum á Ítalíu legg ég áherslu á að mínir farþegar kynnist landi og þjóð, og öllu því áhugaverðasta sem viðkomandi svæði býður upp á. Það er svo sannarlega af nægu að taka, hvort sem við erum við sjávarsíðuna á Portofinoskaganum eða við hið undurfagra Comovatn.“
Njóta en ekki þjóta

Gönguferðir Bændaferða henta flestum þeim sem eru við góða heilsu, njóta þess að hreyfa sig utandyra og eru örugg á göngu á náttúrustígum. Ferðirnar eru hugsaðar til að njóta náttúrunnar og kynnast landi og þjóð, ekki er keppt við tímann heldur lögð áhersla á að njóta líðandi stundar.
Fararstjóri gefur þátttakendum góðan tíma til hvíldar með reglulegu millibili til að nærast og njóta útsýnisins.

Njóttu hressandi útivistar í sumar í frábærum félagsskap
„Við hjá Bændaferðum höfum sérstakan áhuga á útivist og öllu því sem henni tengist og bjóðum upp á breitt úrval af frábærum hreyfiferðum. Til samanburðar þá er munurinn á gönguferð og útivistarferð sá að í útivistarferðunum okkar gefst fólki tækifæri á að stunda blandaða hreyfingu, þar er alltaf að minnsta kosti einn rafhjóladagur og fjórir göngudagar. Í gönguferð eru yfirleitt fimm göngudagar," útskýrir Helga Björg Ragnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Bændaferðum.

Kynnast matarmenningu hvers svæðis
Hótelin í ferðunum eru sérvalin og lögð rík áhersla á að bjóða upp á góða gististaði þar sem hægt er að hvíla lúin bein eftir góðan útivistardag. Mjög oft bjóða hótelin upp á heilsulind og sundlaug. Oftast er dvalið á einu hóteli allan tímann og gengið um nærliggjandi svæði. Þannig gefst kostur á að kynnast vel umhverfi og matarmenningu svæðisins.

Áfangastaðirnir eru fjölbreyttir og í ár bjóða Bændaferðir m.a. upp á gönguferðir til Portofino & Cinque Terre, til Pýrenafjallanna á Spáni, til Grænlands, Portúgals, að Comovatni, í dali Dólómítafjallanna í Suður-Tíról og þriggja landa göngu við Adríahafið þar sem gengið er um Ítalíu, Slóveníu og Króatíu.
Einnig er boðið upp á ferð þar sem siglt verður á fljótabát á Mósel, Saar og Rín og farið í gönguferðir frá nýjum stað á hverjum degi. Útivistarferðir ársins eru á Costa Brava ströndina á Spáni, við Bled vatn í Slóveníu og við Achensee í Austurríki.