Verstappen var að vanda á ráspól en missti Sainz fram úr sér á öðrum hring og Hollendingurinn hætti svo keppni eftir aðeins fjóra hringi, vegna bilunar í hemlabúnaði. Þetta er aðeins í fyrsta sinn í tvö ár sem Verstappen neyðist til að hætta keppni.

Sainz hafði fulla stjórn á hlutunum eftir þetta og liðsfélagi hans, Charles Leclerc, vann sig upp úr 5. sæti í 2. sæti svo að sigur Ferrari var tvöfaldur. Lando Norris hjá McLaren-Mercedes varð í 3. sæti en keppnin endaði á rólegum nótum því kalla þurfti út öryggisbíl eftir árekstur George Russell en hann slapp ómeiddur.
McLaren-menn náðu 3. og 4. sætinu því Oscar Piastri komst fram úr Sergio Perez, liðsfélaga Verstappen, sem varð að láta sér 5. sæti nægja.
Keppnin hleypti strax mun meiri spennu í keppnina um heimsmeistaratitilinn en Verstappen er enn efstur með 51 stig. Leclerc kemur næstur með 47 og Pérez er með 46, en Sainz er með 40 stig í 4. sæti eftir að hafa misst af keppninni í Sádi Arabíu vegna meiðsla.
Red Bull er efst í keppni bílasmiða með 97 sti gen Ferrari er núna nærri með 93 stig.
Næsta keppni er í Japan, 7. apríl.