Aron Sigurðarson fór meiddur út af í leik KR og Fylkis í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á sunnudag, leik sem KR vann 4-3. Hann fékk niðurstöðu úr myndatöku í gær.
„Aron er frá í að minnsta kosti mánuð, þangað til um miðjan maí. Þetta er lærið, rifa eða tognun,“ segir Gregg.

Það læri hafði verið að plaga Aron í aðdraganda leiksins en hann hafði aftur á móti æft vel með liðinu og staðist öll próf fyrir leik.
„Hann gat ekki fengið sneiðmyndatöku af þessu þegar hann meiddist fyrst. En hann hafði æft á fullu alla vikuna fyrir leikinn við Fylki. Hann náði topphraða á æfingu og hafði staðist öll próf fyrir leik,“
„Það var engin áhætta af okkar hálfu. Hann hafði æft á fullu og ég hugsaði ekki einu sinni út í þetta. Það var helst hvort hann gæti spilað 90 eða 70,“ segir Gregg.
Krummi frá út leiktíðina
Hrafn Tómasson kom inn á fyrir Aron í fyrri hálfleiknum gegn Fylki en þurfti svo sjálfur að víkja strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Hann steig þá illa niður og hélt um hnéð. Í gær kom í ljós að það fór á versta veg, hann hafði slitið krossband í annað sinn á ferlinum og á öðru hné en síðast.

„Þetta er mikill skellur. Sérstaklega fyrir Krumma. Hann var búinn að standa sig svo vel fyrir tímabilið. Ég finn mikið til með honum en við þurfum núna að styðja hann og sjá til þess að hann mæti sterkari til baka,“ segir Gregg.
Dregur þetta dug úr mönnum fyrir leik kvöldsins við Stjörnuna?
„Þetta breytir ekki miklu. Við erum með sterkan hóp og þetta gefur öðrum leikmönnum tækifæri. Það er bara spennandi að sjá þá standa sig. Auðvitað er þetta alltaf svekkjandi að missa leikmenn en aðrir þurfa að stíga upp,“ segir Gregg.
Skoða í kringum sig
Atli Sigurjónsson kom inn fyrir Hrafn í síðari hálfleiknum og átti frábæran leik, skoraði tvö marka KR. Hann hefur hins vegar lítið æft vegna meiðsla síðasta hálfa árið og orðið grunnt á kantmönnum hjá KR. Þurfa þeir ekki hreinlega að bæta við hópinn í ljósi tíðindanna?
„Við erum tilbúnir að stökkva á eitthvað komi það upp. Við erum að líta í kringum okkur en það er ekkert að klárt að neitt gerist,“ segir Gregg.
Leikur Stjörnunnar og KR er klukkan 19:15 í kvöld. Bein útsending hefst klukkan 19:00 á Stöð 2 Sport.