Morgan Geyser var tólf ára gömul þegar hún stakk bekkjarsystur sína nítján sinnum og myrti hana næstum því, meðan Anissa Weier, önnur bekkjarsystir hennar, hvatti hana áfram. Þær sögðust hafa gert þetta til að friða Slender Man af ótta við að persónan myndi skaða fjölskyldur þeirra.
Sjá einnig: Stungu tólf ára stúlku nítján sinnum
Geyser, sem er nú 21 árs gömul, var greind með geðklofa en geðlæknar sögðu í dómsal á dögunum að hún hefði verið án lyfja frá 2022 og hefði engin ný einkenni sýnt síðan þá, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.
Einn geðlæknir Geyser sagði hana hafa náð miklum árangri á undanförnum árum og að í dag þyrfti hún hjálp við að aðlagast samfélaginu. Hún þyrfti menntun og aðstoð við að verða sjálfstæð. Því lagði hann til að hún yrði send á meðferðarheimili.
Annar læknir tók undir það og sagði Geyser hafa tekið virkan þátt í eigin meðferð. Hún sagðist telja að ekkert meira væri hægt að gera fyrir hana á geðsjúkrahúsinu þar sem hún hefur verið frá 2018.
Tveir aðrir sérfræðingar sögðu Geyser ekki tilbúna fyrir það að losna af sjúkrahúsi að svo stöddu. Annar sagði Geyser hafa haldið því fram að hún hefði þóst eiga við geðræn vandamál að stríða, sem væri ekki í samræmi við meðferð hennar. Hinn sagði hana enn mögulega ógna öryggi fólks.
Hér að neðan má sjá myndband úr dómsal frá því á miðvikudaginn. Myndbandið er ekki textað.
Almenningur njóti vafans
Dómarinn Michael Bohren vildi ekki sleppa Geyser út í samfélagið að svo stöddu. Hann sagði almenning eiga að njóta vafans og vísaði til þess að Geyser hefði gefið í skyn að hún hefði stungið bekkjarsystur sína til að losna undan ofbeldisfullum föður sínum, sem nú væri látinn.
Hann sagði það koma niður á trúverðugleika hennar og leysa þyrfti úr því áður en henni yrði sleppt.
Tony Cotton, lögmaður Geyser, sagði í kjölfarið að hún hefði ekki breytt sögu sinni. Hún teldi að hún hefði stungið fórnarlambið vegna geðrænna vandamála sem tengdust ofbeldi sem hún hefði verið beitt. Ekki vegna geðklofa.
Geyser getur farið aftur fram á að vera sleppt eftir hálft ár.
Weier var einnig vistuð á geðdeild á sínum tíma en henni var sleppt árið 2021. Hún býr hjá föður sínum en þarf ávallt að bera GPS-sendi.