„Við sáum að bíóreksturinn var að hætta þannig við hugsuðum með okkur að þetta gæti verið kjörið tækifæri til að koma með eitthvað nýtt og ferskt inn. Við heyrðum Háskólabíói sem var rosalega spennt fyrir hugmyndinni og úr varð þetta fyrirbæri, Afturámóti,“ segir Ingi Þór Þórhallsson, einn af stofnendum sviðslistahússins.
Gamanið hefst seinni hluta júní þegar JóiPé og Króli halda þar tónleika, en sá síðarnefndi er einmitt einn af stofnendum sviðslistahússins. Áhugi listafólks á verkefninu er mikill.
„Það eru rosalega góðar viðtökur. Fólk er rosalega almennt ánægt með okkur fyrir þetta framtak og fyrir að vera að gera þetta. Því þetta er greinilega eitthvað sem bara vantar. Það er alveg klárlega markaður fyrir þessu, finnum við,“ segir Höskuldur Þór Jónsson, einn af stofnendum Afturámóti.
![](https://www.visir.is/i/AC9E5ABD59A312355428B44386EDF8F85E6765477DC9D614506F046689704B2B_713x0.jpg)
Verkefnið verður aðeins starfrækt yfir sumartímann en það er nóg á dagskrá. Ungir, óreyndir höfundar verða með verk í bland við þekktari nöfn.
„Það er bara þétt flóra af alls konar dóti,“ segir Ingi.
„Það er bæði ungt og efnilegt fólk og reynsluboltarnir,“ segir Höskuldur.
![](https://www.visir.is/i/DBDF7BFEE8450222F8D4A4220BD17A5B97D36C962CB7D500780E49944FFDC4F5_713x0.jpg)
En þetta er ekki bara leiksýningar er það nokkuð?
„Nei, það eru leiksýningar, söngleikir og tónleikar. Svo eru væntanleg einhver uppistönd og hlaðvörp í beinni. Það verður ýmislegt á dagskrá hér í sumar.“