Skoðun

Tveir val­kostir

Ragnheiður Jónsdóttir skrifar

Íslendingar voru fyrsta þjóð heims til að velja sér konu fyrir forseta í lýðræðislegri kosningu þegar Vigdís Finnbogadóttir varð forseti Íslands og sinnti því hlutverki farsællega í sextán ár. Nú eru liðin tuttuguogátta ár frá því að Vigdís lét af embætti. Karlar hafa setið á Bessastöðum frá 1996, eins og reyndin var allar götur frá lýðveldisstofnun fram til 1980. Nú finnst mér kominn tími á að fá konu á Bessastaði. Ekki bara einhverja konu heldur þroskaða konu sem býr að víðtækri reynslu og hefur í fyrri störfum sínum sýnt í verki að hún hefur heilbrigða og réttsýna dómgreind, starfar í almannaþágu og er reiðubúin að taka erfiðar og mögulega óvinsælar ákvarðanir ef þörf er á.

Í mínum huga eru aðeins tvær konur sem koma til greina í embætti forseta Íslands. Fyrir mér stendur valið milli Höllu Tómasdóttur og Katrínar Jakobsdóttur. Báðar eru þær afburða manneskjur sem búa umfram aðra frambjóðendur að þeirri reynslu og mannkostum sem tilteknir voru hér að ofan. Þær eru með báða fætur í íslenskum rótum sínum en eru jafnframt sigldar og sóma sér vel í félagsskap fulltrúa á alþjóðavettvangi þar sem þær njóta virðingar. Halla Tómasdóttir og Katrín Jakobsdóttir hafa skýra framtíðarsýn, geta látið rödd Íslands heyrast á erlendum vettvangi svo eftir sé tekið. Báðar hafa þær valist til forystu allan sinn starfsferil, tekist á við krefjandi verkefni og leitt þau til farsældar fyrir heildina. Við getum treyst því að með því að merkja við Höllu Tómasdóttur eða Katrínu í kjörklefanum fyrsta júní næstkomandi erum við að verja atkvæði okkar vel.

Af tveimur ágætum valkostum er Halla Tómasdóttir minn frambjóðandi. Ég tel hana bera af öðrum frambjóðendum. Halla Tómasdóttir er hlý manneskja, auðmjúk, vel menntuð, skelegg, greind og lausnamiðuð, brennur fyrir að leggja sitt af mörkum til að skapa betra samfélag og hefur sýnt í verki að hún er mikils megnug. Það kemur ekki af sjálfu sér að Halla Tómasdóttir var valin ein af tuttugu áhrifamestu konum heims í loftslags-og umhverfismálum 2024 af Reuters fréttastofunni og árið 2011 var hún á lista Newsweek yfir 150 konur sem hafa afgerandi mótandi áhrif á heiminn.Ég sé hins vegar verðugan frambjóðanda í Katrínu Jakobsdóttur, sem myndi án efa einnig leysa hlutverk forseta Íslands vel af hólmi. Mig dreymir um að nú á þessu herrans ári 2024, verði Íslendingar fyrstir þjóða til að kjósa konu í embætti forseta öðru sinni. Við höfum engu að tapa en allt að vinna.

Ragnheiður Jóna Jónsdóttir




Skoðun

Sjá meira


×