Binni greindi frá atvikinu í færslu á Instagram. Þar mátti sjá myndir af honum liggjandi á jörðinni með tösku undir höfðinu. Hann kveðst þakklátur fólkinu sem komu honum til aðstoðar en af myndum að dæma virðist flugfreyja hafa veitt honum aðstoð enda þjálfuð í slíkum uppákomum:
„Shoutout á fólkið sem gaf mér banana, vatn, súkkulaði og kaffi. Góð byrjun á ferðinni,“ skrifar Binni meðal annars í einn færslunni. Binni hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem ein ástsælasta stjarna þjóðarinnar og þekktur fyrir lífshamingju sína og hreinskilni.

Munaður í Kaupmannahöfn
Ekkert var til sparað í ferðalagi Binna og vinkonu hans Karenar Líf. Ferðin hófst í notalegheitum í Leifsstöð á Saga Lounge. Þá sátu þau á fyrsta farrými á leið sinni til Kaupmannahafnar.
Vinirnir gista á Tivoli hótelinu í miðborg Kaupmannahafnar í glæsilegri svítu, en þau fengu óvænta tilfærslu á einni af svítum hótelsins þeim að kostnaðarlausu. Fall er fararheill eins og einhver sagði.
Nótt í sambærilegu herbergi kostar rúmar sjötíu þúsund íslenskar krónur eða 3500 krónur danskar.



