Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HMS. Ekki er minnst á einstakar netverslanir í tilkynningunni en uppgangur kínversku netverslunarinnar Temu undanfarnar vikur hefur vakið mikla athygli.
HMS og önnur markaðseftirlitsstjórnvöld fylgjast með því að vörur á íslenskum markaði uppfylli öryggiskröfur.
„Það er þó farsælast að neytendur séu meðvitaðir um eigin vörukaup og velji aðeins vörur sem þeir telja sig geta verið vissir um að uppfylli þær kröfur sem gilda um vöruöryggi innan EES-svæðisins,“ segir í tilkynningunni.
„Mikilvægt er að neytendur séu gagnrýnir þegar kemur að „kjarakaupum“ frá erlendum netverslunum og spyrji sig af hverju verðið sé svona lágt samanborið við evrópskar vörur. HMS bendir sérstaklega á að mjög ódýrar vörur frá netverslunum utan Evrópu uppfylla að öllum líkindum ekki kröfur sem gerðar eru til þeirra í Evrópu. Nauðungarvinna við framleiðslu varanna getur líka skýrt lágt vöruverð.“
Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna ræddi kínverska netverslunarrisann Temu í Reykjavík síðdegis fyrir helgi.
Sérlega lág verð samanborið við sambærilegar vörur í öðrum netverslunum gefi vísbendingu um að hlutaðeigandi vörur hafi ekki verið prófaðar með tilliti til öryggisatriða.
„Neytendur ættu því að íhuga hvort barnaleikföng, föt, snyrtivörur og aðrar vörur gætu innihaldið efni sem eru bönnuð samkvæmt evrópskum stöðlum,“ segir í tilkynningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.