Púað á Walesverja eftir neyðarlegt jafntefli við eitt versta landslið heims Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júní 2024 12:45 Lewis Koumas og félagar í velska landsliðinu skutu eintómum púðurskotum gegn Gíbraltar. getty/Fran Santiago Wales gerði markalaust jafntefli við Gíbraltar í vináttulandsleik á Algarve í gær.
Þeir stuðningsmenn Wales sem gerðu sér ferð á leikinn púuðu á leikmenn liðsins eftir leikinn enda úrslitin verulega vandræðaleg fyrir Walesverja. Gíbraltar er í 203. sæti styrkleikalista FIFA og hafði tapað síðustu þrettán leikjum sínum með markatölunni 50-0. Rob Page, þjálfari Wales, kvaðst skilja stuðningsmennina sem púuðu á liðið eftir leikinn í gær. „Þeir hafa rétt á sinni skoðun, algjörlega. Ég skil þá fullkomlega. Ég er stuðningsmaður Wales auk þess að vera þjálfari og er vonsvikinn. En ég verð tala áfram um heildarmyndina og verð líklega gagnrýndur fyrir það. Þetta snýst um heildarmyndina og við einbeitum okkur áfram að því sem við höfum gert,“ sagði Page. Fimm leikmenn léku sinn fyrsta leik fyrir velska landsliðið í gær og þeir ellefu sem byrjuðu leikinn höfðu aðeins spilað 44 landsleiki samtals. Í seinni hálfleik setti Page leikmenn á borð við Daniel James, Brennan Johnson og Kieffer Moore inn á en ekkert gekk að brjóta klettharða vörn Gíbraltar á bak aftur. Gíbraltar náði þarna í sitt fyrsta stig síðan liðið vann Andorra í vináttulandsleik í nóvember 2022.
Fótbolti Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Í beinni: Valur - Breiðablik | Stórleikur á Hlíðarenda Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Í beinni: Valur - Breiðablik | Stórleikur á Hlíðarenda Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Hato mættur á Brúnna Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Bröndby mætir í Víkina með tap í farteskinu Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Viðar var ekki lengi að stanga boltann í netið Sjá meira