Gengið verður til kosninga í Frakklandi eftir tvær vikur. Emmanuel Macron Frakklandsforseti boðaði til kosninga í skyndi eftir að flokkur hans hlaut helmingi færri atkvæði en Þjóðfylkingin í Evrópukosningum á dögunum.
Samkvæmt skoðanakönnunum mælist Þjóðfylkingin með mest fylgi um þessar mundir, en kosningarnar fara að öllum líkindum fram í tveimur umferðum.
Jordon Bardella er forseti flokksins og deilir forystu með Marine Le Pen. Í samtali við franska fjölmiðla sagði hann að stefna flokksins væri að leggja niður ríkismiðilinn og spara þar með um þrjá milljarða evra, sem jafngildir rúmlega 400 milljörðum króna. Hann sagði að það myndi taka tíma og „myndi ekki gerast á 24 tímum“.
Frakkland þyrfti „smá frelsi, smá súrefni,“ eins og Bardella komst að orði. Margt af því efni sem væri flutt á ríkismiðlinum væri „vinstrisinnað eða öfgavinstrisinnað“ og það ætti ekki að vera „tabú“ að ræða einkavæðingu. Nánar er fjallað um málið í frétt Guardian.