Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2024 16:00 Bergþór Ólason, Þórunn Sveinbjörnsdóttir og Vilhjálmur Árnason gerðu upp þingárið og þinglokin í Sprengisandi í morgun. Vísir/Vilhelm Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. „
Þá er það sem ég óttast mest. Ég held að forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, eigi mjög mikið undir því að þetta flosni ekki upp strax í haust,“ segir Bergþór og bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn heldur sinn næsta landsfund í febrúar. Þar muni Bjarni sækja sitt umboð og til að tryggja það verði hann að halda ríkisstjórninni gangandi. „Ég er hræddur um að það muni kosta mjög mikið,“ segir Bergþór sem gerði upp þingárið og þinglokin í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Með honum voru Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingkona Samfylkingarinnar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Árnason. Bergþór segir að það verði áhugavert hvernig muni ganga í haust hjá ríkisstjórninni. Vinstri græn fái nýja forystu í október eftir landsfund sinn en það sé pólitískur ómöguleiki að Svandís, sem líklega taki við henni, sitji sem fagráðherra í aðdraganda næstu kosninga. Vilhjálmur tók þá við og sagði þingveturinn hafa verið langan og strangan. Það hafi verið átök en á sama tíma hafi hann verið árangursríkur. Upplegg stjórnarandstöðu um ósætti í ríkisstjórn sé ekki það sem hann upplifi. Það sé öflugt og stemningin sjaldan verið betri. Flokkarnir haldi auðvitað í sín gildi og það hafi verið vitað frá upphafi að þessir þrír flokkar myndu þurfa að gera málamiðlanir í þessu samstarfi. Það hafi verið talinn styrkur hennar til að byrja með að geta það. Náðu að klára stór mál Vilhjálmur sagði þannig ríkisstjórninni hafa tekist að klára ýmis stór mál eins og útlendingalöggjöf annað árið í röð, örorkufrumvarp sem hafi verið í umræðu í áratugi og lögreglulög sem hafi lengi verið í umræðu. Þórunn Sveinbjarnardóttir segist geta tekið undir að það hafi verið kláruð góð mál, eins og örorkufrumvarpið. En það hafi verið breið samstaða um það mál, sem og önnur, eins og Mannréttindastofnun, á þinginu. Málin sem ekki fóru í gegn hafi ekki gert það vegna ágreinings við stjórnarandstöðu, heldur vegna ágreinings innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Hún nefndir samgönguáætlun, lagareldi og raforkuleg. „Á endanum snýst svo allt um grásleppu. Það er það sem gerðist ígærkvöldi. Á endanum snýst pólitíkin á Íslandi um grásleppu og þá einhvern veginn hugsar maður hver er sýnin,“ segir Þórunn og að hún velti því fyrir sér hvernig ríkisstjórnin ætli að nýta það rúma ár sem hún á eftir við völd. „Þegar samstarf í ríkisstjórn er orðið þannig að fólk hvorki heilsast né horfist í augu þá er bara gott að pakka saman. Erindið er búið og við skulum bara kjósa,“ segir Þórunn. Hún gagnrýnir einnig að stjórnarflokkarnir stöðvi sín eigin mál í nefndum þó svo að þau séu búin að málamiðla um þau í sínum þingflokkum. Það sé ekki eðlilegt vinnulag. Hélt að þetta væri búið þegar Katrín hætti Vilhjálmur segir að hann hafi ekki alltaf verið stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar en að hann sé það núna. Hann hafi samt haldið, sem dæmi, þegar Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, fór í forsetaframboð að samstarfinu lyki þá. Það hafi þó komið fljótt í ljós að flokkar í stjórnarandstöðu voru ekki tilbúnir í ríkisstjórnarsamstarf og því aðeins einn valmöguleiki í stöðunni. Að ljúka kjörtímabilinu með þeirri ríkisstjórn sem var til að geta klárað þau mál sem þau voru með í vinnslu. Við það tækifæri hafi málin verið rædd ítarlega og eftir það sé annar taktur hjá ríkisstjórninni. „Það lagaðist andrúmsloftið og maður sá hver staðan var,“ segir Vilhjálmur. Honum hafi ekki litist á að setja vaxtaákvarðanir Seðlabankans og kjarasamninga í uppnám með því að boða til nýrra kosninga. Sem er það sem stjórnarandstaðan var búin að sammælast um á þeim tíma. „Ég held að þetta sé langöflugasta niðurstaðan í stöðunni eins og hún er,“ segir Vilhjálmur. Linnulaus útgjöld Bergþór brást við þessu og sagði ástæðu þess að Seðlabankinn eigi erfitt um vik með að lækka vexti séu verðbólguvæntingar í samfélaginu sem séu keyrðar, að miklu leyti, áfram af „linnulausum ríkisútgjöldum“ og vexti þeirra. Hann óttist að kostnaðurinn við það að halda ríkisstjórninni gangandi verði „endalaus kosningavíxlaútgjöld“ til að friða hvern flokk fyrir sig. „Það er grafalvarleg staða,“ segir Bergþór og að heimilin í landinu muni að enda greiða fyrir það. Þórunn segir að það sé erfitt að halda því fram að efnahagsmálin eða ríkisfjármálin myndu fara í uppnám við kosningar. Það sé engin stöðugleiki í þeim. Þórunn gefur ekki mikið fyrir útskýringar Vilhjálms fyrir áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi og segir hann lýsa því sem einhvers konar nauð. Það hafi verið augljóst þegar Katrín hætti að ekki allir vildu Bjarna Benediktsson í færsætisráðherrastólinn. Þremenningarnir ræddu einnig alþjóðastjórnmál, breytt pólitískt landslag á Íslandi, mannréttindamál og efnahagsmálin.
Alþingi Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Tengdar fréttir Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. 23. júní 2024 09:54 Lengsti þingfundurinn fimmtán klukkustundir Þingi var frestað í nótt fram að hausti hafði þá verið að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að alls hafi þingfundir verið 131 og að þeir hafi samtals staðið í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var fjórar klukkustundir og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klukkustundir og 43 mínútur. 23. júní 2024 08:06 Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu. 23. júní 2024 07:32 Lagði til breytingar á ræðuhöldum á sautjánda júní Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands lagði til að forsetinn héldi ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn í stað forsætisráðherra eins og tíðkast hefur. Þetta sagði hann þegar hann frestaði þingfundum 154. löggjafarþings á fyrsta tímanum í nótt. Fundum Alþingis verður fram haldið þann tíunda september. 23. júní 2024 00:29 Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira
Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. 23. júní 2024 09:54
Lengsti þingfundurinn fimmtán klukkustundir Þingi var frestað í nótt fram að hausti hafði þá verið að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að alls hafi þingfundir verið 131 og að þeir hafi samtals staðið í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var fjórar klukkustundir og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klukkustundir og 43 mínútur. 23. júní 2024 08:06
Lilja Rafney segir sig úr VG vegna svika flokksins Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna hefur sagt sig úr flokknum. Það gerði Lilja Rafney eftir að samþykkt var á þingi frumvarp um kvótasetningu grásleppu. Í aðsendri grein segir Lilja Rafney að hún segi sig úr flokknum vegna svika hans við eigin sjávarútvegsstefnu. 23. júní 2024 07:32
Lagði til breytingar á ræðuhöldum á sautjánda júní Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands lagði til að forsetinn héldi ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn í stað forsætisráðherra eins og tíðkast hefur. Þetta sagði hann þegar hann frestaði þingfundum 154. löggjafarþings á fyrsta tímanum í nótt. Fundum Alþingis verður fram haldið þann tíunda september. 23. júní 2024 00:29