Ásta Halla sagði af raunum sínum í Facebook-hópnum „Tjaldsvæði – umræðuvettvangur“, sagði að það væri ekki alltaf gott að vera vondi kallinn á tjaldsvæðinu en verandi rekstraraðili beri hún ábyrgð.
Hún bætir því við í samtali við Vísi að hún viti ekki hvers lenskur dólgurinn sé, hún geri ráð fyrir því að hann hafi verið breskur en hann var með íslenska konu sér við hlið sem kom því rækilega á framfæri við Ástu Höllu hvað þeim þætti um hana.
Stórhættulegur opinn eldur
„Á lífi ykkar og eignum,“ segir Ásta Halla en henni varð það á að setja ofan í við erlendan gest sem hafði ákveðið að grilla úti á túni með einnota grilli. Ekkert undirlag, jörðin brann og eftir situr sárið svart.
„Eftir nýliðin bruna í Húsafelli þá erum við extra vel á vaktinni og frekar viðkvæm fyrir svona háttalagi,“ segir Ásta Halla.
Hún segir talsverða umræðu um opinn eld á tjaldsvæðinu hafi sprottið fram og gesturinn hreint ekki verið sáttur við tjaldvörðinn.
„Hann neitaði svo að borga fyrir gistinguna eftir þau orð sem ég lét um hann falla,“ segir Halla. En þau orð voru um hversu heimskulegt það megi heita að kveikja opinn eld á miðju túni á tjaldssvæði. Og láta sig þá hverfa einn í hjólhýsi og ekkert eftirlit haft með eldinum.
Farin án þess að borga
Ásta Halla segist hafa breitt bak og hún sé ýmsu vön en þetta sé ekki liðið á tjaldsvæðinu.
„Hann hótaði mér að sverta okkur á netinu og á ég ekki von á öðru. En þetta er okkar hlið á málinu en þeir eru nokkrir sem urðu vitni að þessum leiðinda atburði og geta vitnað til um atburðinn. Ég sagði honum bara að gera það en hann skyldi þá segja alla söguna.“

Þau skötuhjú eru nú farin af vettvangi. Þau fóru í morgun.
„Ég gerði tilraun til að rukka hann. Ég var á minni daglegu eftirlitsferð og bauð honum góðan daginn. Og rukkaði hann. Þá spurði hann hvort ég héldi virkilega að hann ætla að borga miðað við hvernig ég talaði við hann í gær? Ég sagði að hann þyrfti að borga fyrir aðstöðuna og rafmagnið sem hann notaði.“
En skömmu síðar voru þau farin, pökkuðu á klukkutíma og létu sig hverfa frá ógreiddum reikningi. Ásta Halla gerir fastlega ráð fyrir því að bíllinn sem þau voru á hafi verið bílaleigubíll og hún segist þá bara senda leigunni reikninginn.
„Við erum ekki í þessu uppá krónur og aura heldur viljum við hafa gesti okkar ánægða,“ segir Ásta Halla. En hún vill hafa skikk á málunum. Umsagnir á netinu skipta miklu máli og þá er eins gott að girða fyrir ónákvæmar frásagnir, þegar svo ber undir.