Davíð fær engin svör í bráð frá Golfklúbbi Sandgerðis Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2024 13:37 Lárus (t.h.) segist nú hættur við að senda út yfirlýsingu vegna máls Davíðs Jónssonar og sona hans tveggja sem vikið var úr Golfklúbbi Sandgerðis og úr miðju meistaramóti. Málið mun líklega koma til kasta aganefndar, með tíð og tíma. Lárus Óskarsson, formaður Golfklúbbs Sandgerðis, segist hættur við að gefa út yfirlýsingu vegna máls Davíðs Jónssonar og fjölskyldu. „
Nei, ég er hættur við það. Það eru svo miklar rangfærslur og lygar í þessu þannig að ég ætla ekkert að svara þessu. Ég verð bara að sitja uppi með þennan Svarta-Pétur,“ segir Lárus Óskarsson í samtali við Vísi. Lárus vill að öðru leyti ekkert láta hafa neitt eftir sér um málið. Vísir greindi frá því, í frásögn af því þegar Davíð Jónsson og synir hans tveir voru reknir úr klúbbnum í miðju meistaramóti, að til stæði að klúbburinn sendi frá sér yfirlýsingu vegna máls hans. Það verður ekki að svo stöddu máli. Lárus sagði að það gæti vel verið að þetta yrði tekið upp með tíð og tíma hjá aganefnd klúbbsins en það verður ekki strax. Davíð lýsti því í ítarlegu samtali við Vísi að hann hafi sent klúbbnum bréf þar sem hann krefst skýringa á því hvers vegna honum var vikið úr klúbbnum. Hann hefur haft samband við bæði GSÍ og ÍSÍ sem hafa bent honum á að hann þurfi að fá skýringar frá Golfklúbbnum áður en lengra er haldið. En það gæti orðið bið á því að þær skýringar fái Davíð.
Golf Suðurnesjabær Golfvellir Mest lesið Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent Fleiri fréttir Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Sjá meira