Kolbeinn lék allan leikinn á miðjunni hjá Gautaborg sem hefur unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum. Paulos Abraham skoraði sigurmark liðsins í kvöld.
Kolbeinn hefur leikið tólf leiki með Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og lagt upp þrjú mörk.
Ekki gekk jafn vel hjá Gísla Eyjólfssyni, Birni Snæ Ingasyni og félögum í Halmstad. Þeir töpuðu 1-2 fyrir AIK á heimavelli.
Gísli og Birnir voru báðir í byrjunarliði Halmstad sem er í 11. sæti deildarinnar með átján stig, einu stigi meira en Gautaborg.