Forsætisráðherrann og ríkisstjórn hans hafa sætt harðri gagnrýni vegna þeirra öryggisbresta sem komu í ljós í árásinni, þar sem næstum 1.200 voru myrtir og um 250 teknir í gíslingu.
„Fyrst vil ég sigra Hamas,“ sagði Netanyahu á ísraelska þinginu í gær.
Talsmaður hans sagði forsætisráðherrann ekki freista þess að koma sér undan rannsókn heldur þyrftu stjórnvöld núna að einbeita sér að því að hafa sigur í yfirstandandi átökum.
„Það sem fólk vill að við gerum núna er ekki að ráðast í dramatíska innri rannsókn á meðan gíslar eru enn í haldi og á meðan hermenn hafa kvatt daglegt líf til að verja landið sitt. Að sjálfsögðu verður málið rannsakað en núna erum við að einblína á að hafa sigur í þessu stríði,“ hefur Guardian eftir talsmanninum.
Sundrung virðist meðal ráðamanna hvað þetta varðar en varnarmálaráðherrann Yoav Gallant kallaði eftir því í síðustu viku að sett yrði á fót nefnd til að rannsaka árásina 7. október. Allt þyrfti að vera undir; ráðamenn, herinn, öryggisyfirvöld.
Myndskeið birtist í síðustu viku af fundi Netanyahu með fjölskyldum látnu þar sem forsætisráðherrann neitaði að biðjast afsökunar á þeim mistökum sem urðu til þess að árásarmönnunum tókst ætlunarverk sitt.
Þá virtist hann hissa þegar fjölskyldurnar lýstu því að hermenn við eftirlit í Nahal Oz hefðu varað hefði verið við árásunum.
Hershöfðinginn Aharon Haliva, yfirmaður leyniþjónustu hersins, sagði af sér vegna málsins í apríl og í síðustu viku sagði háttsettur embættismaður öryggiststofnunarinnar Shin Bet einnig af sér. Hann hefur ekki verið nefndur á nafn en aðeins nefndur „Aleph“, sem er fyrsti stafur hebreska stafrófsins.
Kallað hefur verið eftir afsögn Netanyahu í fjölmennum mótmælum en ólíklegt verður að teljast að forsætisráðherrann svari kallinu.