Skoðun

Alzheimer - mennska og mildi

Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar

Hinn 21. september er Alþjóðlegur dagur Alzheimer og mig langar að minna okkur öll á þau sem gleyma, þau sem eru greind með Alzheimer eða aðra tegund heilabilunar og hvað við hin getum gert til að efla lífsgæði þeirra.

Við vitum öll, að heimurinn glímir við margskonar áskoranir og þær verða eingöngu tæklaðar með mennsku og mildi að leiðarljósi og það sama gildir um áskoranir okkar í hinu daglega lífi. Við hjá Alheimersamtökunum reynum að nýta okkur þessi sömu leiðarljós, mennsku og mildi, í þjónustu okkar við skjólstæðinga og aðstandendur þeirra.

Við vitum, að sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að hollt mataræði, líkamleg, félagsleg og andleg heilsa skiptir verulegu máli og þess vegna leggjum við mikla áherslu á við skjólstæðinga okkar og aðstandendur þeirra, að til þess að efla lífsgæði á þeirri vegferð sem framundan er, þá er afar brýnt að hafa í alltaf í huga:

  • að halda daglegri rútínu er mikilvægt og skapar öryggi
  • að hollt mataræði skiptir miklu máli
  • að alls kyns hreyfing er af hinu góða
  • að félagsleg tengsl eru undirstaða vellíðunar
  • að reyna á heilann með ýmsum þrautum kemur öllum til góða
  • og við vitum að þessir þættir geta hamlað framgangi Alzheimer/heilabilunar

Við vitum líka, að líðan skjólstæðinga okkar er margs konar, þeir geta verið áhyggjufullir, óöruggir og kvíðnir því einföldustu athafnir daglegs lífs eru þeim stundum um megn því þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera, þeir eru einfaldlega að missa færni til þess. Þá skiptir máli að við hin sýnum mennsku og mildi þegar við tölum saman og leiðbeinum í þessum erfiðu aðstæðum. Við skulum hafa í huga að í einstaklingi með heilabilun búa áfram tilfinningar og aðgát skal höfð í nærveru sálar.

En við skulum líka hafa í huga að hugsanlega skynjar einstaklingur með heilabilun að fólkið hans hefur enn meiri áhyggjur en hann sjálfur, það finni líka fyrir kvíða, óöryggi og pínu örvæntingu og slík skynjun getur brotist út með ýmsum hætti en þá reynir á okkur hin að muna að sýna mennsku og mildi í öllum samskiptum.

Við skulum alltaf hafa í huga að það er ekki bara svartnætti framundan þó sjúkdómurinn sé grimmur, það er líka von og það er margt sem við getum gert. Við getum til dæmis stuðlað að því að einstaklingur með heilabilun skynji væntumþykju og virðingu í sinn garð og að sjállfsvirðingu og sjálfsálitið sé haldið við. Það er okkar innleg og við getum vonandi jafnframt bætt líðan viðkomandi.

Við vitum, að á þessari vegferð eru skrefin mörg og misjöfn en það er frumskylda samfélagsins að sjá til þess að þjónusta sé fyrir hendi í þessum sjúkdómi sem öðrum. Það á ekki að færa ábyrgðina yfir á aðstandendur og þeirra sé að sjá um einstaklinga sem greinast með heilabilun. Heilbrigðis- og félagslegakerfið þurfa að byggja brýr sín á milli til að auka þjónustuúræði og leita allra leiða til að efla lífsgæði þessara einstaklinga. Það mun ekki standa á Alzheimersamtökunum að taka þátt í þeirri vegferð.

Að lokum minni ég alla á ráðstefnu okkar „Taktu málin í þínar hendur“ sem hefst klukkann 12:30 á Hótel Reykjavík Grand og einnig á frábæra fyrirlestra sem verða í Seiglunni 23. og 24. september en nálgast má frekari upplýsingar á alzheimer.is.

Höfundur er formaður Alzheimersamtakanna.




Skoðun

Sjá meira


×