Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. október 2024 15:55 Gabriel Martinelli fagnar eftir að hafa komið Arsenal í 2-1. getty/Rene Nijhuis Bukayo Saka skoraði eitt mark og lagði upp tvö þegar Arsenal vann nýliða Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 3-1, Skyttunum í vil. Arsenal lenti undir í leiknum en kom til baka og vann sinn fimmta sigur í fyrstu sjö deildarleikjum tímabilsins. Arsenal er með sautján stig í 3. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Liverpool. Southampton er hins vegar í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með einungis eitt stig. Eftir markalausan fyrri hálfleik þar sem Arsenal sótti stíft án þess að skapa sér mörg færi kom Cameron Archer Southampton yfir á 55. mínútu. Adam var ekki lengi í paradís því aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Kai Havertz fyrir Arsenal. Gabriel Martinelli kom inn á sem varamaður á 60. mínútu og átta mínútum síðar kom hann heimamönnum yfir, 2-1. Saka lagði upp fyrstu tvö mörk Arsenal og skoraði svo það þriðja tveimur mínútum fyrir leikslok. Enski boltinn