Fótbolti

Dag­skráin í dag: Ís­land mætir vonandi Tyrkjum

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Óskarsson verður vonandi á ferðinni á Laugardalsvelli í kvöld.
Orri Óskarsson verður vonandi á ferðinni á Laugardalsvelli í kvöld. vísir/Anton

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tekur á móti Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld og freistar þess að halda áfram góðu gengi sinni í heimaleikjum gegn Tyrkjum. Leikurinn er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Landsleikurinn í kvöld er aðalmálið á íþróttarásum Stöðvar 2 Sport og Vodafone, að því gefnu að ekki verði ákveðið að fresta leiknum. Upphitun hefst hálftíma fyrir leik, eða klukkan 18:15, og leikurinn verður svo krufinn til mergjar í uppgjörinu strax eftir að honum lýkur, líkt og á föstudag þegar Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson fóru á kostum.

Fleiri leikir í Þjóðadeildinni eru í beinni útsendingu í kvöld, auk leikja í bandaríska hafnaboltanum.

Stöð 2 Sport

18.15 Ísland – Tyrkland, upphitun (Þjóðadeild UEFA)

18.45 Ísland – Tyrkland (Þjóðadeild UEFA)

20.45 Ísland – Tyrkland, uppgjör (Þjóðadeild UEFA)

Vodafone Sport

16.00 Georgía – Albanía (Þjóðadeild UEFA)

18.45 Þýskaland – Holland (Þjóðadeild UEFA)

20.45 Mets – Dodgers (MLB)

23.00 Guardians – Yankees (MLB)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×