Innlent

Þór­dís gæti boðið sig fram í Kraganum

Kjartan Kjartansson skrifar
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Stöð 2/Einar

Mögulegt er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, bjóði sig fram í Suðvesturkjördæmi í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Hún segist íhuga það alvarlega.

Í viðtali við Morgunblaðið segir Þórdís að henni beri skylda til þess að líta til hvar hún geti unnið Sjálfstæðisflokknum mest fylgi í þeirri stöðu sem er komin upp.

Þórdís er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og hefur setið á þingi fyrir kjördæmið frá árinu 2016. Hún er fædd á Akranesi, stærsta bæ kjördæmisins, er er búsett í Kópavogi sem er í Suðvesturkjördæmi.

Spurð að því hvort að hún hefði borið hugmyndina undir Bjarna Benediktsson, formann flokksins og oddvita í Suðvesturkjördæmi, sagðist Þórdís hafa rætt það við hann ásamt ýmsu öðru.

„En þetta er auðvitað ákvörðun sem ég tek fyrir mitt leyti og svo er það trúnaðarmanna í kjördæminu að raða upp listanum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×