Enski boltinn

Willum Þór með mikil­vægt mark í endurkomusigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Willum Þór Willumsson var á skotskónum með Birmingham City í dag.
Willum Þór Willumsson var á skotskónum með Birmingham City í dag. Getty/ Jacob King

Willum Þór Willumsson skoraði þegar Birmingham City vann 3-1 útisigur á Lincoln City í ensku C-deildinni í dag.

Birmingham lenti undir í leiknum og fékk síðan á sig vítaspyrnu þegar þeir voru búnir að snúa við leiknum. Markvörður liðsins, Ryan Allsopp, kom þá til bjargar og varði vítið. Birmingham innsiglaði sigurinn strax í kjölfarið.

Lincoln menn fengu draumabyrjun í leiknum þegar Bailey Cadamarteri kom liðinu yfir á fyrstu mínútu.

Birmingham jafnaði með marki Keshi Anderson á 14. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Willum Þór kom Birmingham síðan yfir á 52. mínútu með skoti utan teigs. Þetta var þriðja deildarmark Willums á tímabilinu en hin komu í 3-2 sigurleikjum á móti Wycombe og Peterborough.

Reeco Hackett tók víti fyrir Lincoln á 72. minútu en Ryan Allsopp varði það.

Keshi Anderson innsiglaði sigurinn á 79. mínútu með sínu öðru marki í leiknum.

Sigurinn skilar Birmingham tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×