Fótbolti

Birkir Bjarna kom aftur inn á og skoraði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kannski kominn tími á það hjá þjálfara Brescia að setja Birki Bjarnason í byrjunarliðið.
Kannski kominn tími á það hjá þjálfara Brescia að setja Birki Bjarnason í byrjunarliðið. Getty/Image Photo Agenc

Birkir Bjarnason skoraði í öðrum leiknum í röð og í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum þegar Brescia varð að sætta sig við 3-2 tap á heimavelli sínum á móti Cosenza í ítölsku b-deildinni.

Birkir lagði líka upp jöfnunarmarkið hjá Brescia en gestirnir náðu að tryggja sér sigurinn á fimmtu mínútu í uppbótatíma.

Brescia tókst þannig að jafna metin á 90. mínútu eftir þessa frábæru innkomu íslenska miðjumannsins. Mark og stoðsending Birkis dugðu því miður ekki til þess að fá stig.

Eftir þetta tap þá er Brescia í áttunda sæti deildarinnar með sautján stig og fimm sigra í þrettán leikjum.

Það nægði ekki Birki að skora sigurmarkið eftir innkomu sína í síðasta leik því hann var aftur á varamannabekknum. Birkir skoraði eina markið í sigri á Sampdoria um síðustu helgi.

Þegar Birkir kom inn á í hálfleik í dag þá var Brescia lent 2-0 undir.

Mörk Cosenza skoruðu þeir Massimo Zilli á 34. mínútu og Simone Mazzocchi úr víti í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Birkir minnkaði muninn á 77. mínútu með skoti eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Andrea Cistana. Hann lagði síðan upp mark fyrir Flavio Bianchi á 90. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×