Ísland er í B-deild Þjóðadeildarinnar og mætir Svartfjallalandi á morgun, og svo Wales í lokaumferðinni á þriðjudaginn. Tyrkland er efst í riðlinum með 10 stig, Wales er með 8, Ísland 4 og Svartfjallaland 0.
Langmestar líkur eru taldar á því að Ísland endi í 3. sæti riðilsins, og fari í umspilsleiki í mars um að halda sér í B-deildinni.

Vegna innbyrðis úrslita gegn Tyrkjum á Ísland ekki lengur neina möguleika á að ná efsta sæti.
Með því að fá fleiri stig en Wales á morgun (Wales mætir Tyrklandi á útivelli) verður leikur Íslands við Wales úrslitaleikur um 2. sæti riðilsins.
Ef Ísland tapar á morgun er hins vegar enn hætta á að liðið endi neðst í riðlinum.
Þjóðadeild UEFA
Leikið er í fjórum deildum; A, B, C og D, og er liðunum skipt í riðla innan deilda. Ísland er í B-deild, í riðli með Tyrklandi, Wales og Svartfjallalandi.
- Efsta liðið fer beint upp í A-deild. Ísland getur ekki lengur náð því.
- Næstefsta liðið fer í umspil við lið úr A-deild, um sæti í A-deild.
- Næstneðsta liðið fer í umspil við lið úr C-deild, um sæti í B-deild.
- Neðsta liðið fellur beint niður í C-deild.
Hvar gæti Ísland spilað í mars?
Ef að Ísland endar í 2. sæti en ekki því þriðja þarf liðið einnig að fara í umspil í mars, nema bara mikið skemmtilegra umspil við sterka þjóð um að komast upp í A-deild. Eini möguleikinn á að Ísland fari ekki í umspil er ef liðið missir Svartfjallaland upp fyrir sig og fellur beint niður í C-deild.
Það eru því yfirgnæfandi líkur á að Ísland fari í umspil í mars. KSÍ er meðvitað um þá stöðu en hefur ekki gefið út hvernig tekist verði á við þetta, því ljóst er að ekki verður hægt að spila á Laugardalsvelli í mars.
Ef Ísland endar í 3. sæti gæti mótherji í umspilinu orðið lið á borð við Slóvakíu eða Svíþjóð, Kósovó, Búlgaríu eða Færeyjar, en það á þó eftir að skýrast betur. Lendi Ísland í 2. sæti gæti liðið mætt liði á borð við Pólland, Belgíu, Serbíu eða Ungverjaland, í umspili í mars.
Geta ekki komist í HM-umspil gegnum Þjóðadeildina
Það hvort Ísland verður upptekið í umspili í mars ræður því hvort Ísland verður í fjögurra eða fimm liða riðli í undankeppni HM á næsta ári. Leikdagar á almanaki UEFA eru ekki nægilega margir til að lið sem fara í umspil Þjóðadeildar séu líka í fimm liða riðli í undankeppninni.
Liðin sem leika í fimm liða riðlum í undankeppni HM spila leiki í lok mars og byrjun júní, en liðin í fjögurra liða riðlum (mjög líklega Ísland) byrja undankeppnina ekki fyrr en í september. Þá ætti að vera komið blandað gras og hægt að spila á Laugardalsvelli, en framkvæmdir standa þar yfir. Undankeppninni lýkur svo í nóvember.
Sigurlið hvers riðils í undankeppninni kemst beint á HM en liðin í 2. sæti fara í umspil í mars 2026, um síðustu sætin á HM. Við það umspil bætast einnig fjögur bestu liðin sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni í þessum mánuði, en hafa ekki unnið sig inn á HM eða í umspilið í gegnum undankeppnina.
Ísland á ekki lengur möguleika á að fara „Þjóðadeildarleiðina“ í umspilið því UEFA er með reglurnar þannig í þessu sambandi að „verðmætara“ er að vinna riðil í til dæmis D-deild en að lenda í 2. sæti riðils í B-deild.
Dregið verður í riðla í undankeppni HM þann 13. desember.
Leikur Íslands og Svartfjallalands á morgun hefst klukkan 17 og er í beinni og opinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikur Wales og Íslands er svo á þriðjudagskvöld klukkan 19:45, einnig í beinni og opinni útsendingu á Stöð 2 Sport.