Fótbolti

KSÍ boðar unga varnar­menn á sér­æfingar

Sindri Sverrisson skrifar
Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins. Hver veit nema að arftaki hans sé á meðal þeirra stráka, fæddir 2008 og 2009, sem boðaðir hafa verið á æfingar í varnarleik síðar í þessum mánuði?
Sverrir Ingi Ingason er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins. Hver veit nema að arftaki hans sé á meðal þeirra stráka, fæddir 2008 og 2009, sem boðaðir hafa verið á æfingar í varnarleik síðar í þessum mánuði? vísir/Anton

Knattspyrnusamband Íslands hefur boðað unga varnarmenn á sérstakar æfingar í lok þessa mánaðar, í von um að eignast enn betri varnarmenn þegar fram líða stundir.

Á árum áður voru Íslendingar vanir því að eiga varnarmenn í einni sterkustu landsdeild Evrópu, ensku úrvalsdeildinni, en í dag spilar enginn íslenskur varnarmaður í einhverri af sterkustu deildum álfunnar.

Reyndar var það einnig svo þegar Ísland náði sínum besta árangri í sögunni og fór í 8-liða úrslit á EM og inn á HM, að varnarlínan var ekki skipuð varnarmönnum sem spiluðu í sterkustu deildunum. 

Arnar Gunnlaugsson, nýráðinn landsliðsþjálfari, sagði líka á blaðamannafundi á föstudaginn að hann væri ósammála umræðunni um að íslenska landsliðið væri ekki nógu sterkt í vörn. Varnarmenn Íslands hefðu sannarlega sína styrkleika.

Engur að síður hefur KSÍ nú brugðist við og boðað unga leikmenn á séræfingar í vörn, og það undir handleiðslu manna með gríðarlega reynslu af því að verjast, í efstu deildum Englands.

„Tilraunaverkefni“ sem vonandi skilar sér

Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari mun hafa umsjón með æfingunum ásamt landsliðsþjálfurum yngri landsliða, en fyrrum landsliðs- og atvinnumennirnir Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson munu einnig þjálfa á æfingunum.

„Það hefur verið kallað eftir því að okkur vanti fleiri varnarmenn. Að það þurfi að laga varnarleikinn okkar. Við erum að fara af stað í lok janúar með smá tilraunaverkefni með yngri leikmenn,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 um helgina.

„Við ætlum að vera með æfingar þar sem við köllum saman eingöngu varnarmenn yngri landsliða. Inni á þeim æfingum verða kempur eins og Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson, og mögulega fleiri, sem aðstoða landsliðsþjálfara okkar í að kenna undirstöðuatriði í varnarleik, staðsetningar og fleira. Vonandi kemur eitthvað gott út úr þessu. Við erum alltaf að reyna að finna einhverjar leiðir til að laga hlutina, og í samvinnu við félögin þá vonandi skilar þetta sér,“ sagði Jörundur Áki.

Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í leikstöðuæfingum KSÍ dagana 28. – 29. janúar 2025:

Leikmenn fæddir 2008

Ásbjörn Líndal Arnarsson – Þór Ak.

Birkir Hrafn Samúelsson – ÍA

Egill Ingi Benediktsson – Leiknir R.

Gísli Snær Waywadt Gíslason – Stjarnan

Gunnar Baltasar Guðmundsson – HK

Ísak Logi Eysteinsson – Keflavík

Ketill Orri Ketilsson – FH

Kristinn Tjörvi Björnsson – Víkingur R.

Stefán Logi Sigurjónsson – Fylkir

Styrmir Jóhann Ellertsson – ÍA

Sverrir Páll Ingason – Þór Ak.

Sölvi Svær Ásgeirsson – Grindavík

Leikmenn fæddir 2009

Björn Darri Oddgeirsson – Þróttur R.

Brynjar Óðinn Atlason – ÍA

Egill Valur Karlsson – Breiðablik

Halldór Sveinn Elíasson – Njarðvík

Jakob Sævar Johansson – Afturelding

Kristófer Kató Friðriksson – Þór

Markús Andri Daníelsson Martin – Hamar

Nökkvi Arnarsson – HK

Oliver Napiórkowski – Fylkir

Rúnar Logi Ragnarsson – Breiðablik

Sigmundur Logi Þórðarson – KA

Skarphéðinn Gauti Ingimarsson – KR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×