Sport

Dag­skráin í dag: Brýtur Amorim annað sjón­varp?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúben Amorim hefur ekki átt sjö dagana sæla sem þjálfari Man Utd.
Rúben Amorim hefur ekki átt sjö dagana sæla sem þjálfari Man Utd. vísir/Getty

Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Fjöldi leikja í Evrópudeild karla í knattspyrnu er á boðstólnum sem og spennandi leikir í Bónus deild karla og kvenna í körfubolta.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.55 hefst GAZið: Upphitun. Klukkan 21.10 eru Tilþrifin á dagskrá.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 17.35 er leikur AZ Alkmaar og Roma í Evrópudeildinni á dagskrá. Klukkan 19.50 er leikur Manchester United og Rangers í sömu keppni á dagskrá. Rúben Amorim, þjálfari Man Utd, braut sjónvarp í reiðiskasti eftir tap liðsins á dögunum. Endurtekur hann leikinn í kvöld?

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.35 er leikur Viktoria Plzen og Anderlecht í Evrópudeildinni á dagskrá. Klukkan 19.50 er leikur Ludogorets og Midtjylland í sömu keppni á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 19.00 hefst útsending frá leik Indiana Pacers og San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 17.35 er leikur Tindastóls og Grindavíkur í Bónus-deild kvenna á dagskrá. Klukkan 20.10 er komið að karlaliðum félaganna að leika listir sínir.

Vodafone Sport

Klukkan 17.35 er leikur Hoffenheim og Tottenham Hotspur í Evrópudeildinni á dagskrá. Klukkan 19.50 er leikur Lazio og Real Sociedad á dagskrá. Orri Steinn Óskarsson leikur með Sociedad.

Klukkan 00.05 er leikur Red Wings og Canadiens í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.

Bónus deild karla

Klukkan 19.10 hefst útsending frá Álftanesi þar sem heimamenn taka á móti KR.

Bónus deildin 2

Stjarnan tekur á móti Haukum. Útsending hefst klukkan 19.10.

Bónus deildin 3

Njarðvík tekur á móti Hetti. Útsendingin hefst klukkan 19.10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×