Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Polynorth 11. febrúar 2025 08:52 Polynorth kom við sögu þegar þessi bílskúr var reistur á Akureyri. Sprenging hefur orðið í sölu á húskubbum framleiddum úr frauðplasti og eru verktakar og einstaklingar að átta sig á kostum þess að byggja úr húskubbum framleiddum á Íslandi.
Starfsfólk í plastkubbaverksmiðjunni Polynorth á Akureyri leggur nú nótt við dag að koma upp veglegum lager fyrir sumarið, að sögn Hjörleifs Árnasonar, annars eigenda fyrirtækisins. „Við stefnum á stuttan afhendingartíma og lipra þjónustu. Þar sem kubbarnir eru framleiddir á Akureyri þarf aldrei að bíða eftir sendingum erlendis frá, við bara vinnum lengur ef vantar meira.“ Í vetur hefur Polynorth boðið upp á gott verð og allskyns tilboð á kubbunum til að létta þrýstinginn fyrir næsta sumar. „Margir eru því að stökkva á það og taka hjá okkur kubbana núna á meðan verðið er gott og spara sér fyrir vikið tugi þúsunda króna. Framkvæmdir í Reykholti. Hjörleifur Árnason og Hrafn Stefánsson keyptu verksmiðjuna í apríl 2021. Hjörleifur er viðskiptafræðingur og matreiðslumaður að mennt og hefur verið í fyrirtækjarekstri undanfarin ár, meðal annars í veitingageiranum. Hrafn er vélfræðingur og hefur reynslu af plastframleiðslu bæði hér heima og erlendis. Hannað og framleitt í heimabyggð „Mikið er lagt upp úr gæðum og eru kubbarnir okkar einstaklega sterkbyggðir en jafnframt léttir og lítið mál að höndla með þá alla daginn án þess að þreytast,“ segir Hjörleifur. „Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu og að leysa öll verkefni sem koma inn á borð til okkar.“ Sumarið 2024 keyrðu starfsmenn út kubba til viðskiptavina meðal annars á Reyðarfirði, Ísafirði, Grímsey, Hellu og Þórshöfn, svo fátt eitt sé nefnt. „Það er gaman að segja frá því að við fengum allnokkur símtöl síðasta sumar þar sem aðilar sem voru að byggja úr kubbum frá okkur hringdu í okkur eingöngu til að segja frá því að þeir hefðu klárað verkið langt á undan áætlun.“ „Tímafaktorinn er orðin einn af aðalþáttum sem þarf að taka inn í verkið þar sem manntími er orðinn nokkuð kostnaðarfrekur og stór hluti af heildarkostnaði. Með kubbunum okkar geta allir hjálpað til við að klára verkið á mettíma. Við erum gríðarlega stoltir og ánægðir með þessar viðtökur“, segir Hjörleifur. Kubbarnir Tvær megin tegundir af húskubbum eru framleiddar í verksmiðjunni. „Annars vegar eruð það sökkulkubbar þar sem steypuþykktin er 215 mm og hins vegar veggkubbar þar sem steypuþykktin er 140 mm. Sama þykkt er á einangrun á kubbunum, 70 mm að utan og 50 mm að innan.“ Kubbarnir raðast einfaldlega upp eins og Legokubbar og stálið lagt ofan í þá, eitt lag í einu. „Skorið er úr fyrir gluggum og hurðum og steypt í. Gott er að stífa kubbana af með tommu sex borðum og er reglan einfaldlega sú að því fleiri stoðir, þeim mun líklegra er að ekkert hreyfist þegar steypunni er hellt í mótin.“ Kyndikostnaður stórminnkar Af því húskubbahús eru einangruð bæði að utan og innan dregur það verulega úr kyndingarkostnaði. Hjörleifur segir að það sé himinn og haf milli kostnaðar við upphitun plastkubbahúsa og húsa sem byggð eru úr öðrum efnivið. „Þannig að þau eru bæði fljótlegri í byggingu og ódýrari í kyndingu. Til lengri tíma litið er mikill sparnaður í að byggja úr plastkubbum.“ 400 fm geymsla í Vaðlaheiði. Tímamóta-reiknivél sem einfaldar útreikninga Polynorth hefur tekið í notkun á heimasíðu sinni, reiknivél þar sem viðkomandi slær inn flatarmál og ummál byggingar og reiknivélin sér um að reikna út kostnað. „Þessi nýjung hefur mælst einstaklega vel fyrir hjá okkar viðskiptavinum og vonandi á hún eftir að hjálpa mörgum að áætla kostnað við að byggja, hvort sem það er stórt einbýlishús eða lítill bílskúr.“ Sökkull undir einbýlishús í Bláskógabyggð. Endurnýting í sátt við náttúruna „Frauðplast er svo slæmt fyrir náttúruna af því að það brotnar ekki niður“. Þessi setning heyrist oft, en Hjörleifur er á öðru máli og útskýrir: „Allur afskurður sem fellur til þegar við erum að skera í sérpantanir er hakkaður niður og endurnýttur. Öllu sem gengur af hjá þeim sem kaupa af okkur plast er hægt að skila, það er líka hakkað niður og endurnýtt. Meira að segja umbúðir utan af hráefninu okkar eru hakkaðar niður og endurnýttar samkvæmt kúnstarinnar reglum.“ Fyrirtæki og verktakar hafa áttað sig á þessu og snúast á sveif með Polynorth að vernda náttúruna og minnka sóun. „Mætti þar nefna fyrirtæki eins og Samkaup, Elko, Tengir og Húsheild Hyrna. Allt umfram plast sem fellur til koma þessi fyrirtæki með til okkar og við endurnýtum, allir græða og náttúran mest. Ef þú ert að hugsa um nýbyggingu, viðbyggingu eða bílskúrinn sem þig er búið að langa svo lengi í, ekki hika við að heyra í okkur og kíkja á reiknivélina á heimasíðunni okkar www.polynorth.is“.
Hús og heimili Byggingariðnaður Mest lesið Segja áherslur Trump-stjórnarinnar fela í sér tækifæri fyrir Icelandair Viðskipti innlent Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Viðskipti erlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Viðskipti erlent Björn Brynjúlfur selur Moodup Viðskipti innlent Það besta og skrýtnasta í dýrasta auglýsingaplássi veraldar Viðskipti innlent Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Viðskipti innlent Katrín Ýr frá JBT Marel til Heilsu Viðskipti innlent Að hringja sig inn veik á mánudögum Atvinnulíf Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira