Fyrsta mark Marmoush kom á 19. mínútu eftir langa sendingu frá markverðinum Ederson. Annað markið kom fimm mínútum síðar eftir undirbúning İlkay Gündoğan og þrennan var svo fullkomnuð á 33. mínútu eftir sendingu frá Savinho.
Þrenna á tólf mínútum og sigurinn svo gott sem kominn í hús. Staðan var enn 3-0 þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik. Varamaðurinn James McAtee bætti fjórða marki heimamanna við þegar sex mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.
Skömmu síðar varð Man City fyrir áfalli þegar norski framherjinn Erling Haaland meiddist á hné án þess að vera snertur. Hann gekk þó af velli en um tíma virtist sem Pep Guardiola óttaðist hið versta.
Lokatölur á Etihad-vellinum í Manchester 4-0 og Englandsmeistararnir komnir með 44 stig í 4. sæti deildarinnar.

- Bournemouth vann 3-1 útisigur á botnliði Southampton. Dango Ouattara, Ryan Christie og Marcus Tavernier með mörk gestanna á meðan Kamaldeen Sulemana skoraði fyrir Dýrlingana.
-
Fulham vann 2-1 sigur á Nottingham Forest. Emile Smith Rowe og Calvin Bassey með mörk heimamanna á meðan Chris Wood skoraði mark gestanna í Forest.
-
Kevin Schade skoraði eina mark Brentford þegar liðið vann 1-0 útisigur á West Ham United.
-
Nýliðar Ipswich Town náðu í stig á Villa Park þrátt fyrir að vera manni færri frá 40. mínútu þegar Axel Tuanzebe fékk sitt annað gula spjald. Liam Delap með mark Ipswich á meðan Ollie Watkins skoraði mark Aston Villa.
Stöðuna í deildinni má finna á vef ensku úrvalsdeildarinnar.