Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund? Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar 28. febrúar 2025 08:15 Sjálfstæðisflokkurinn stendur frammi fyrir mikilvægu vali sem móta mun framtíð sína næstu helgi. Til að tryggja öflugan og stóran Sjálfstæðisflokk, sem mætir þörfum allra kynslóða, þurfum við leiðtoga sem skilur ungar konur, virðir eldri kynslóðir og getur brúað bilið á milli þeirra. Sá leiðtogi er Guðrún Hafsteinsdóttir. Guðrún er konan sem hefur rutt brautina sem við ungar sjálfstæðiskonur viljum fylgja. Hún hefur með elju og dugnaði byggt upp fyrirtæki og skapað störf. Hún hefur leitt fyrirtæki sitt með góðu fordæmi, á eigin forsendum, með styrk sem við dáumst að. Hún er alþýðleg, aðgengileg og sannarlega fyrirmynd fyrir okkur ungar sjálfstæðiskonur. Hún sýnir að sannur leiðtogi mótar eigin vegferð og er ekki bundinn við fyrirframgefnar hugmyndir, heldur skiptir mestu að hafa sterka sýn, mannleg gildi og kjark til að framkvæma. Hún er hlý, traust og reiðubúin að vinna með öllum, óháð aldri, búsetu og bakgrunni. Hún veit að saman erum við sterkari og að framtíðin krefst samtals milli kynslóða. Hún brennur fyrir öflugu samfélagi, þar sem við öll eigum tilverurétt og tækifæri til að blómstra. Framúrskarandi leiðtogi og fyrirmynd Það sem gerir Guðrúnu Hafsteinsdóttur einstaka er hversu framúrskarandi hún er á öllum sviðum, bæði sem sjálfstæðiskona og sjálfstæð kona. Hún er brautryðjandi í sínu samfélagi og lætur ekkert stöðva sig þegar kemur að því að finna lausnir og skapa tækifæri. Þegar börnin hennar gátu ekki æft sund í Hveragerði, tók hún því ekki sem svari, heldur brást við með því að stofna sunddeild, svo öll börn í bænum gætu lært að synda í sinni heimabyggð. Þessi drifkraftur og framkvæmdagleði einkennir hana á öllum sviðum. Atvinnuferill Guðrúnar er ekki síður til eftirbreytni. Aðeins 23 ára gömul, tók hún við fjölskyldufyrirtækinu og leiddi það til þeirrar velgengni og virðingar sem Kjörís nýtur í dag. Vörumerkið hefur ratað inn á flest heimili landsins og er eitt af sterkustu innlendu vörumerkjum okkar tíma. Guðrún þjónar sínu nærumhverfi af eljusemi og einurð – og allt þetta gerir hún með sjálfstæðisstefnuna að vopni. Hún er sönn fyrirmynd fyrir ungar sjálfstæðiskonur og lifandi sönnun þess að með dugnaði, áræðni og réttum gildum eru okkur allir vegir færir. Við undirritaðar, ungar sjálfstæðiskonur, viljum leiðtoga sem hlustar, skilur og hefur sýnt í verki að hún stendur með okkur öllum. Við trúum á Guðrúnu Hafsteinsdóttur, við trúum því að hún muni hefja flokkinn okkar aftur til þeirrar vegs og virðingar sem hann á skilið í íslensku samfélagi. Nú er tíminn til að sameina krafta okkar og styðja leiðtoga sem getur leitt flokkinn til nýrra sigra. Stækkum Sjálfstæðisflokkinn, stétt með stétt. Höfundar eru ungar sjálfstæðiskonur á leiðinni á landsfund. Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir Alda María Þórðardóttir Aníta Guðjónsdóttir Ásdís Elfa Einarsdóttir Ásthildur Bertha Bjarkadóttir Bríet Járngerður Unnardóttir Dagný Lísa Davíðsdóttir Diljá Valsdóttir Elín Jónsdóttir Elín Káradóttir Esther Hallsdóttir Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir Heba Lind Guðmundsdóttir Heiða Skúladóttir Hekla Björt Birkisdóttir Helena Hauksdóttir Jacobsen Helga Vala Helgadóttir Indiana Breiðfjörð Inga María Hlíðar Thorsteinson Júlía Katrín Sigmundsdóttir Margrét Bára B. Birgisdóttir Margrét Guðmundsdóttir Katrín Anna Karlsdóttir Kristín Alda Jörgensdóttir Ragnheiður Arnarsdóttir Signý Pála Pálsdóttir Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir Sóley Halldórsdóttir Sólveig Rut Þórarinsdóttir Stephanie Sara Drífudóttir Sonja Dís Johnson Guðlaugsdóttir Sylvía Martinsdóttir Steinunn Eva Óladóttir Sæunn Tamar Ásgeirsdóttir Tara Líf Friðgeirsdóttir Tinna Eyvindardóttir Unnur Elín Sigursteinsdóttir Viktoría Tea Vökudóttir Þórdís Katla Einarsdóttir Þórhildur Arnarsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar