Kane á skotskónum í sigri Bæjara í einvígi þýsku liðanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2025 21:54 Harry Kane fagnar fyrra marki sínu fyrir Bayern München í kvöld. AFP/Peter Kneffel Bayern München er í fínum málum eftir 3-0 sigur á Bayer Leverkusen í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Bæjarar kláruðu leikinn ellefu á móti tíu eftir að Leverkusen maðurinn Nordi Mukiele fékk sitt annað gula spjald á 62. mínútu. Harry Kane kom Bayern yfir strax á níundu mínútu leiksins þegar hann skallaði inn sendingu Michael Olise. Mikilvægt mark svo snemma leiks. Þannig var staðan þar til á 54. mínútu þegar Jamal Musiala kom Bayern í 2-0 með marki af stuttu færi. Bæjarar misstu reyndar markvörðinn sinn Manuel Neuer meiddan af velli á 58. mínútu þannig að þetta var ekki fullkomið kvöld. Kane gerði það þó enn betra þegar hann kom liðinu 3-0 með marki úr vítaspyrnu á 75. mínútu. Kane fiskaði vítið sjálfur. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla