Fótbolti

Eitt­hvað sem læknar segja ekki við þig að á­stæðu­lausu

Aron Guðmundsson skrifar
Jón Guðni Fjóluson hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir þrálát meiðsli
Jón Guðni Fjóluson hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir þrálát meiðsli Vísir/Sigurjón

Jón Guðni Fjólu­son, fyrr­verandi at­vinnu- og lands­liðs­maður í fót­bolta hefur lagt skóna á hilluna. Þrálát meiðsli spila sinn þátt í þeirri ákvörðun en verkirnir eru orðnir of miklir fyrir Jón Guðna sem skilur stoltur við sinn feril.

„Staðan á hnjánum er bara þannig að þetta er ekki eins og það á að vera,“ segir Jón Guðni í samtali við íþróttadeild. „Ekki nægi­lega gott til að halda áfram að pína sig í gegnum þetta. Þetta hefur farið stig­vaxandi í gegnum tíma­bilið í fyrra með verkjum og á seinni hlutanum er þetta eitt­hvað sem ég næ ekki að losa mig við á milli leikja. Mér er bara illt og á annarri löppinni eigin­lega allt árið í fyrra.“

Því miður gekk það ekki

Jón Guðni hafði stefnt að því að leika með Víkingum á komandi tíma­bili, það sé svekkjandi að sjá það ekki raun­gerast.

Auðvitað vill maður spila eins lengi og maður getur og tíma­bilið sem er fram­undan er virki­lega spennandi, sér­stak­lega hérna í Víkinni með hópinn, mann­skapinn sem við erum með innan sem utan vallar. Það er mjög hár standard á öllu hérna og auðvitað hefði maður vilja geta tekið þátt í því. En því miður gekk það ekki.“

Jón Guðni varði sínu síðasta ári á ferlinum hjá Víkingi ReykjavíkVísir/Sigurjón

„Þetta hefur verið okkar á milli í smá tíma. Ég er búinn að liggja á þessu sjálfur í nokkrar vikur, hugsa þetta fram og til baka en síðan fékk ég ágætis hjálp frá lækna­t­eyminu í kringum mig. Að þetta væri kannski ekkert svo sniðugt. Það er eitt­hvað sem þeir segja ekki við þig að á­stæðu­lausu. Það er ein­hver ástæða á bak við þessi orð og það hjálpar klár­lega til að hafa menn í kringum þetta eins og Sölva og Kára sem hafa gengið í gegnum ýmis­legt sjálfir. Þá á ég bæði við skilninginn í minn garð, ráðin og samtölin okkar á milli hér sem hafa verið mjög góð og fag­mann­leg. Án þess að þeir hafi verið að setja á mig ein­hverja pressu létu þeir þetta al­gjör­lega í mínar hendur. Það var ég sem fékk að taka ákvörðunina að lokum.“

Síðasti leikur Jóns Guðna á ferlinum var sigur Víkings Reykja­víkur á Pan­at­hinai­kos í fyrri leik liðanna í umspili fyrir 16-liða úr­slit Sam­bands­deildar Evrópu.

„Eftir leikinn á móti Pan­at­hinai­kos, fyrri leikinn út í Finn­landi, fer verkurinn á nýtt stig og þetta er bara orðið of mikið fyrir mig að ráða við. Þegar að þú getur ekki gert þetta al­menni­lega, ekki æft al­menni­lega á milli leikja og haldið þér í standi, þá hættir þetta að vera gaman og maður getur ekki gert hlutina jafn vel og maður vill gera þá sjálfur. Þá fer þetta meira út í pirring í sjálfan sig heldur en að þú sért að njóta þess að spila.“

„Ég er búinn að liggja á þessu sjálfur í nokkrar vikur, hugsa þetta fram og til baka en síðan fékk ég ágætis hjálp frá lækna­t­eyminu í kringum mig. Að þetta væri kannski ekkert svo sniðugt. Það er eitt­hvað sem þeir segja ekki við þig að á­stæðu­lausu.

Sáttur með sinn feril

Jón Guðni, sem verður 36 ára seinna í mánuðinum, á mörg ár í at­vinnu­mennsku að baki í Belgíu, Svíþjóð, Noregi og Rúss­landi svo eitt­hvað sé nefnt sem og átján A-lands­leiki. Jón Guðni skilur sáttur við sinn feril. Há­punkturinn að vissu leiti með Víkingum en einnig bikar­meistara­titill með Hammar­by árið 2021. Hann er sáttur með sína ákvörðunina þó svo að meiðslin neyði hann að miklu leiti í að taka hana.

„Ég náttúru­lega gekk í gegnum erfið meiðsli úti í Svíþjóð, þurfti að fara í nokkrar að­gerðir og mælt með því þá að maður myndi ekki vera að reyna svo mikið á þetta aftur. En þá var ég alveg harðákveðinn í að þeir myndu ekki ákveða hvenær ég myndi hætta í fót­bolta. Það hjálpar til í dag að ég fái að taka þessa ákvörðun ekki liggjandi í rúmi með hnéð upp í loft, heldur er þetta meira mín ákvörðun.“

„Ég er mjög sáttur með minn feril en auðvitað vill maður alltaf meira. Þegar að maður lítur til baka held ég að ég geti verið mjög stoltur af þessu. Það sem kemur fyrst upp í hugann varðandi há­punkta er náttúru­lega bara þetta tíma­bil hérna í fyrra með Víkingum og hversu langt við fórum í Evrópu­keppninni, hvað við vorum með í öllum keppnum fram á síðasta dag. Við spiluðum eins marga leiki og við mögu­lega gátum. Svo urðum við bikar­meistarar í Hammar­by árið 2021. Það var fyrsti titill félagsins í langan tíma. Það var mjög skemmti­legt líka.“

Hefði viljað vera stærri partur af landsliðinu

Þá sér hann ekki eftir neinu.

„En það er svolítið meira Kára Árna­syni, Ragnari Sigurðs­syni og fleirum að kenna að maður fékk lítið að spreyta sig með lands­liðinu. Þeir bara gerðu það vel í þeim leikjum sem þeir spiluðu, yfir langan tíma, að það var ekkert hægt að kvarta yfir því. Auðvitað hefði maður viljað taka meiri þátt í því. En það er ekkert sem að ég sé eftir og það var ekkert al­gjör­lega í mínum höndum. Ef það er eitt­hvað þá er það að maður hefði viljað vera aðeins stærri partur af lands­liðinu.“

Jón Guðni í leik með íslenska landsliðinuVÍSIR/HULDA MARGRÉT

Þjálfarahlutverkið heillar

Þó svo að leik­manna­ferlinum sé lokið er Jón Guðni ekki á þeim buxunum að segja al­farið skilið við fót­boltann.

Það jákvæða við þennan meiðsla­hrjáða tíma úti í Svíþjóð er að ég tek UEFA þjálfara­gráðurnar hjá sænska knatt­spyrnu­sam­bandinu og er því kominn með allar gráðurnar nema UEFA PRO. Það er eitt­hvað sem er ein­falt að fara í og liggur vel til. Það er klár­lega eitt­hvað sem ég hef áhuga á að prófa í framtíðinni og hef verið viðloðandi það hjá 2.flokki hér í Víkinni og mun halda því eitt­hvað áfram. Það er klár­lega eitt­hvað sem mér finnst mjög spennandi.“

Hann er þakk­látur Víkingum fyrir þeirra hluta í síðasta kafla ferilsins.

„Mjög sáttur við hann. Náði að taka meiri þátt strax í fyrra en ég átti von á. Ég vil byrja á því að þakka Kára Árna­syni sér­stak­lega og Víkingum yfir höfuð fyrir að hafa haft trú á manni og tekið við mér í þessu standi sem ég var. Kári var dug­legur í að halda sam­bandi og taka stöðuna á mér á meðan að ég var úti í Svíþjóð. Það var því aldrei spurning þegar að ég kom heim til Ís­lands að koma í Víking. Síðasta tíma­bil er ég nokkuð sáttur við en auðvitað vill maður alltaf gera betur. Ég bara er þannig, vil alltaf skila mínu eins vel og ég mögu­lega get en heilt yfir er ég mjög sáttur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×