Skoðun

Vertu banda­maður kæri bróðir!

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Það er sorglegt en samt staðreynd að þörf er á Kvennaathvarfi og við verðum að tryggja að slíkt úrræði sé til staðar fyrir konur og börn sem flýja heimili sín. Um leið verðum við að segja komið gott af ofbeldi í garð kvenna. Sem betur fer fara margir karlmenn í gegn um lífið án þess að níðast á konum og beita þær ofbeldi, en þeir sem það gera koma því miður oft óorði á hópinn í heild. Hvernig væri að þið friðelskandi og kærleiksríku bræður okkar hoppið á vagninn með okkur og fordæmið ofbeldishegðun kynbræðra ykkar, hátt og snjallt svo eftir verði tekið? Þið viljið vafalítið flestir að mæður ykkar, systur og dætur fari í gegn um lífið óhræddar við að þær verði fyrir ofbeldi á skemmtistöðum, inni á eigin heimili þeirra eða í skjóli næsta skugga. Að þær séu smánaðar á líkama og sál vegna þess að karlmaðurinn í þeirra lífi eða sá sem þær rákust á ræður ekki við eigin hegðun og leitar sér ekki hjálpar.

Við öll sem höfum rödd verðum að láta í okkur heyra og til okkar taka. Vera bandamenn, minna á, tala og hegða okkur á þann hátt að það sé skýrt að ofbeldi er ekki liðið, að ekki sé hlegið að ofbeldi eða það notað í gríni og þannig gert lítið úr því. Ofbeldi á aldrei rétt á sér og það á aldrei að líða, fegra eða réttlæta á neinn hátt. Kennum börnum strax að ofbeldi sé aldrei leiðin heldur samtalið og samkenndin. Fræðum og ræðum um birtingarmyndir ofbeldis því það er ekki einungis í hnefa heldur einnig í hnjóði, í þögninni sem fylgir fýlu sem og fúkyrðum um femínisma. Að forréttindafólk og kjörnir fulltrúar fái skýr skilaboð um að kvenréttindi séu einfaldlega mannréttindi. Að við eigum að geta klætt okkur eins og okkur líður best, að við þurfum ekki að halda hönd yfir glasið innan um fólk, ganga milli staða með lyklana í hnefanum eða kvíða því að fara heim úr vinnunni, því heima séum við staddar í helvíti en samt ekki dauðar, ennþá.

Trúum þeim sem segja frá ofbeldi, kennum þeim ekki um og gerum ekki lítið úr sögum þeirra eða upplifun. Strákar, berjist með okkur gegn eitraðri karlmennsku með þeirri kærleiksríku. Látið í ykkur heyra og fordæmið þá sem leyfa sér í skjóli feðraveldis að níða og meiða. Verið bræður okkar í baráttunni!

Að því rituðu hvet ég öll til að leggja þjóðarátaki um nýtt Kvennaathvarf lið.

Söfn­un­ar­núm­er­in verða opin til 8. apríl og því er enn hægt að styrkja þarft verkefni.

Höfundur er sérfræðingur í kennslu og stjórnun í leik-, grunn- og háskólum til 25 ára.




Skoðun

Sjá meira


×