Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. apríl 2025 20:41 Elísabet tók við Belgíu fyrr á þessu ári. Dan Istitene/Getty Images Belgía gerði sér lítið fyrir og lagði ríkjandi Evrópumeistara Englands 3-2 í Þjóðadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Belgíu og var þetta fyrsti sigur liðsins undir hennar stjórn.
Belgía byrjaði leikinn af krafti og tryggði sér í raun sigur með magnaðri frammistöðu fyrsta hálftíma leiksins. Heimakonur komust yfir strax á 4. mínútu, markadrottningin Tessa Wullaert þar að verki eftir undirbúning Jill Janssens. Justine Vanhaevermaet tvöfaldaði svo fyrstu Belgíu eftir sendingu Wullaert þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn. Ef það var ekki nóg þá bætti Wullaert við öðru marki sínu og þriðja marki Belga þegar tæpur hálftími var liðinn. Staðan orðin 3-0 og Belgar í draumalandi Betu. Beth Mead minnkaði muninn af vítapunktinum þegar tíu mínútur voru til loka fyrri hálfleiks og staðan 3-1 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Hin 19 ára gamla Michelle Agyemang minnkaði muninn enn frekar á 81. mínútu en nær komst England ekki og lauk leiknum með 3-2 sigri Belgíu. Var þetta fyrsti sigur Belgíu sem er nú með þrjú stig í riðli 3 í A-deild. England er með sjö stig á meðan Spánn er á toppnum eftir 7-1 sigur í Portúgal í kvöld. Portúgal er með fjögur stig í 3. sæti.
Fótbolti Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Ísland - Króatía | Brons í boði Handbolti „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Sjá meira