Innherji

Hækkun veiði­gjalda rýrir virði skráðra sjávarút­vegs­félaga um yfir 50 milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Árið 2024 var arðsemin á bundið fjármagn sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöllinni aðeins rúmlega fimm prósent og hefðu eigendur félaganna því fengið „betri ávöxtun að setja peningana inn í bankabók“ en að liggja með þá í nýjum frystitogara, segir í nýrri greiningu um áhrif hærra veiðigjalds á verðmæti og arðsemi fyrirtækjanna.
Árið 2024 var arðsemin á bundið fjármagn sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöllinni aðeins rúmlega fimm prósent og hefðu eigendur félaganna því fengið „betri ávöxtun að setja peningana inn í bankabók“ en að liggja með þá í nýjum frystitogara, segir í nýrri greiningu um áhrif hærra veiðigjalds á verðmæti og arðsemi fyrirtækjanna. Vísir/Vilhelm

Áform ríkisstjórnarinnar um tvöföldun veiðigjalda mun valda því að verðmæti sjávarútvegsfyrirtækjanna þriggja í Kauphöllinni, sem eru að talsverðum hluta í eigu lífeyrissjóða, rýrna um samtals 53 milljarða, samkvæmt nýrri greiningu, og draga úr hvata til fjárfestingar vegna minni arðsemi. Þá er varað við því að komi jafnframt til ytri áfalla, eins og meðal annars léleg nýliðun loðnustofns og viðskiptastríðs, þá sé hætt við að umsvifin minnki verulega og sjávarútvegur verði „ekki lengur einn af máttarstólpunum í íslensku atvinnulífi.“


Tengdar fréttir

Veiðigjöldin verði keyrð í gegn

Þingmenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að atvinnuvegaráðherra á Alþingi í morgun og sökuðu hana um óvandaða stjórnsýslu við breytingar á veiðigjöldum. Ráðherra hafnaði því og ítrekaði að málið yrði klárað á vorþingi.

Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda

Stjórn Samtaka atvinnulífsins geldur varhug við fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar við lagasetningu gagnvart íslenskum sjávarútvegi. Raungerist áhyggjur samtakanna sé ljóst að breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað muni draga úr hagvexti og lífskjarasókn Íslendinga.

Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel

Atvinnuvegaráðherra segir boðaðar breytingar á útreikningi veiðigjalds vera mikið réttlætismál. Breytingarnar muni allt að tvöfalda innheimt veiðigjald og auknum tekjum verði varið í innviðauppbyggingu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gagnrýna áformin harðlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×